Morgunn - 01.12.1933, Blaðsíða 15
MORGUNN
141
annan samið tvö leikrit. Þeg-ar hún er í venjulegu ástandi,
hneigist hugur hennar eingöngu að nútíðar-bókmentum. En
þegar hún er komin í meðvitundarleysis-ástand og farin
að rita ósjálfrátt, tjá skrifin sig ávalt vera frá framliðn-
um mönnum. Efnið er mismunandi. Sumt er sögulegs eðl-
is, eins og postulasagan, sem eg hefi þegar getið um. Sumt
er sannanaeðlis, tilraunir, gerðar af framliðnum mönnum
til þess að sanna sig, og þær hafa tekist ágætlega. Rit-
gjörðir um ýms efni, sem einkum snerta sálræn vísindi.
Og loks lýsingar á öðrum heimum, þeim er mönnunum er
ætlað að fara inn í í framhaldslífinu.
Því er eins farið um þessi efni eins og um sögulegu
efnin, að Miss Cummins hafði enga þekkingu á þeim og
engan áhuga á þeim. Hún hafði engar bækur lesið um sálar-
rannsóknir né spiritisma, og hún hafði enga trú á fram-
haldslífi, fyr en hún sannfærðist um það af sínum eigin
skrifum. Og þegar hún byrjaði á þessum skrifum, sem eg
ætla að skýra frá, gerði hún sér engar sérstakar hugmyndir
um það, hvernig framhaldslífinu sé háttað.
Geta má þess líka, að þessi ósjálfráðu skrif koma
með geysihraða, margföldum hraða á við það, þegar Miss
Cummins semur eitthvað í meðvitundarástandi. Það tek-
ur hana langan tíma. Þessi flýtir á ósjálfráðu skriftinni
er alveg jafnmikill, þó að efnið sé fremur torskilið og
orðalagið vísindalegt, eins og þegar efnið er auðvelt og
orðalagið hversdagslegt.
Sá framliðni maður, sem sagt er að láti Miss Cum-
nains skrifa það, sem hér verður gert að umtalsefni, hefir
oft verið nefndur í þeim ritum, sem komið hafa út hér á
landi um sálræn efni. Hann hét Frederic W. H. Myers
og andaðist 1901. Hann var einn af ötulustu og skarp-
vitrustu sálarrannsóknamönnum, sem uppi hafa verið,
og einn af stofnendum brezka sálarrannsóknafélagsins,
rithöfundur og skáld og kennari við háskólann í Cam-
bridge í grískum og rómverskum fræðum. Aðalrit hans er
»,Persónuleiki mannsins og framhaldslíf hans eftir dauða