Morgunn - 01.12.1933, Blaðsíða 52
178
MORGUNN
vafa um að slík ósjalfráð firðbréf frá vinum mínum og
þeim, sem hafa samúð með mér, gerist, tel þau séu eins
raunveruleg og ritsímaskeyti, eða hver önnur staðreynd
daglegs lífs«.
Þá segir Stead frá því, að hann þekki ekki færri en
tíu menn, sem riti ósjálfrátt skeyti frá lifandi vinum sín-
um.
í eitt skifti er Stead var á ferð í Svisslandi, fekk hann
slíkt ósjálfrátt skeyti frá vini sinum í Englandi. Skeytið
sagði rétt frá öllum atvikum, en það var einkennilegt við
þetta, að »sendandanum« hafði verið sérstaklega hughald-
ið um að leyna fyrir Stead þeim viðburðum, er skeytið
sagði frá.
í fyrirlestri, sem Stead flutti 1893 fyrir London Spi-
tualist Alliance, lýsir hann nokkru nánar þessum ósjálfráðu
skeytum sínum frá lifandi vinum hans. Skeytunum gæti
hann alls ekki náð nema frá sumum. í skeytunum frá
sumum væri að langmestu leytí sagt rétt frá, en frá öðr-
um væri í þeim undarlegur hrærigrautur af réttum og
röngum frásögnum, sagt frá viðburðum, sem enginn fótur
hefði verið fyrir og stundum reyndust öll skeytin tóm vit-
leysa. í eitt skifti fekk Stead skeyti, þar sem sagt var frá
viðburði, er þá var ekki kominn fram, en kom þó fram
nokkrum dögum síðar. En ekkert virðist verða um slíkar
»forspár« dæmt, nema allir málavextir séu vel kunnir.
í eitt skifti samdi Stead við konu í Gloucestershire,
um að hann skyldi sitja rólegur heima hjá sér kl. 10,30
e. h. og reyna að ná frá henni ósjálfráðu skeyti, er hún
ætlaði að reyna að senda honum. Hjá honum rituðust ýms-
ar frásagnir og eins og um hafði verið samið, sendi hann
konunni þegar afrit af skeytinu, til þess að fá að vita, hvað
hún hefði ætlað að segja honum. Niðurstaðan af þessu varð
sú, að Stead hafði ritað eitt eða tvö atriði, af sex eða sjö,
sem hún hafði einbeitt huga sínum við að koma til hans
á þennan hátt. Hitt, sem í skeytinu stóð, voru hugsanir
hennar, sem hún hafði ekki ætlað að senda, en sem hún