Morgunn - 01.12.1933, Síða 34
160
M ORGUNN
drag-ast þeir að sínum kunningjum, mönnum, sem hafa
verið líkt skapi farnir. Ef til vill hafa þeir verið gefnir
fyrir einhverja sérstaklega góða tegund af vindlum. Þeir
geta fengið hana, þangað til þeir eru orðnir leiðir á henni.
Ef til vill hafa þeir verið gefnir fyrir knattleik. Þá eru
þeir í slíkum leikum. ‘En alt er þetta eins og einhver
draumur, sem skapast hefir af sterkustu jarðnesku löng-
ununum.
Þegar fram líða stundir, hættir þeim að þykja á-
nægja að þessu; það fullnægir þeim ekki lengur. Þeir
fara að hugsa og þrá hið óþekta, langa til að lifa nýju lífi.
Þeir eru að lokum undir það búnir, að taka undir sig
stökk í framþróuninni.
I Blekkingarlandinu eru menn í eterlíkama. Hann
er úr fínna eða smágerðara efni en jarðneski líkaminn.
Þeir, sem eru sálarmenn — með öðrum orðum skynsam-
ar, siðferðilega þroskaðar sálir — þeir þrá að halda
upp eftir stiga meðvitundarinnar. Löngun þeirra til jarð-
neskrar tilveru er brunnin til ösku. Samt eru í þessu efni
fáeinar undantekningar.
Til eru þeir sálarmenn, sem þrá að hverfa aftur til
jarðarinnar, eða komast inn í tilveru á einhverri reiki-
stjörnu, þar sem þeir kunna að geta unnið einhvern vits-
munasigur eða tekið einhvern atkvæðamikinn þátt í bar-
áttu hins jarðneska lífs. Þessir menn endurholdgast þá
aftur. En meirihluti sálarmannanna varpar af sér eter-
líkamanum og tekur á sig fínni líkama. Þeir eru þá laus-
ir úr Blekkingarlandinu, þessu barnahæli, þar sem þeir
hafa eingöngu lifað í gömlufn hugmyndum frá jörðunni.
Fjórða sviðið.
Nú fara þessar verur inn í veröld, sem Myers finst
hann helzt geta kallað yfir-jarðneska. Þær eru enn í et-
ernum. Myers þykir eter ekki gott orð, en hann segist
ekki geta fundið neitt annað nafn á því lofti eða öllu held-