Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 8
2 ’ MORGUNN
lengur, var hinu eiginlega verkefni þess félags lokið, og
það var lagt niður.
Þá var um nokkurra ára skeið enginn fastur félags-
skapur um málið, en að útbreiðslu þess unnu þeir mikið
frumherjarnir tveir, Einar H. Kvaran og prófessor Har-
aldur Níelsson. En jafnhliða því, sem málinu jókst fylgi.
fóru að heyrast um það fleiri raddir, að nauðsyn bæri til
þess, að menn byndust samtökum um að vinna að frekari
framgangi þess. Og þar kom, að tíminn var fullnaður og
félagið stofnað.
Það var fáum dögum fyrir jól, 19. des. 1918, að fjöl-
menni var komið saman í Iðnó til þess að stofna félagið,
sem hlaut nafnið Sálarrannsóknafélag Islands. Leitað
hafði verið nokkuð um undirtektir, og áður en fundurinn
var lialdinn hafði hátt á annað hundrað manns óskað
að taka þátt í slíkri félagsstofnun, og stofnfundinn sótti
mikill fjöldi annarra, sem óskuðu að taka þátt í félags
stofnuninni.
Einar H. Kvaran setti fundinn og bauð menn velkomna,
en fundarstjóri var kosinn Ólafur heitinn Björnsson, rit-
stjóri, og fundarritari Sigurður Ó. Lárusson, sem nú er
prestur í Stykkishólmi. Þá gaf fundarstjóri orðið Einari
H. Kvaran, sem flutti snjallt erindi, er prentað var í jóla-
blaði Morgunblaðsins fáum dögum síðar. 1 erindinu lýsti
hann því, hvert markmiðið væri með því að kalla saman
þennan fund og markmiði félagsins, sem hér ætti að stofna,
ef mönnum sýndist svo.
Framsögumaðurinn ræddi í stuttu en ljósu máli ástandið
í andlegum málum þjóðarinnar, og benti á, hver þörf
væri fyrir þessa félagsstofnun. Hann gat þess, að hann og
skoðanabræður hans hefðu alllengi haft hug á að stofna
slíkt félag, en þá hefði brostið áræði til þess. Næstu vik-
urnar áður hafði spánska veikin geysað um bæinn, sorgin
var mikil, sárin eftir hina miklu drepsótt voru mikil og
og mörg. Að þessu víkur fyrirlesarinn í inngangserindi
sínu og segir á þessa leið: