Morgunn - 01.06.1949, Qupperneq 28
22
MORGUNN
sem alls ekki voru þá í mínum huga, já, allt aðrir hlutir
en voru í huga mér þá stundina. Þetta hefir oft komið
bæði fyrir mig og aðra og sannar fyllilega, að hugir okkar
voru ekki að verki við miðilssambandið."
Edmonds hafði nákvæma þekking á kröfum þeirra tíma
vísinda til sannana, og hann kunni að svara með vísinda-
legri nákvæmni. Honum var Ijóst, hve geysilega merkilegt
mál var hér um að ræða frá vísindalegu sjónarmiði, og
honum var hitt einnig ljóst, hve þýðingarmikið mál var
hér á ferðinni, frá trúarlegu sjónarmiði séð. Um blessun
hinnar nýju þekkingar farast honum orð á þessa leið:
,,Hér er á ferðinni mál, sem veitir syrgjendunum huggun
og uppörfun þeim, sem eru að láta hugfallast, mál, sem
gerir götuna að gröfinni slétta og eyðir óttanum við dauð-
ann. Hér er mál, sem gefur guðleysingjanum stórkostlega
fræðslu og siðbætir lostasegginn. Hér er mál, sem vekur
hinum dyggðuga gleði og hugrekki í sorgum hans og erfið-
leikum. Hér er mál, sem sýnir manninum skyldu hans
og markmið, svo að það getur ekki lengur verið vafið
þoku óvissunnar."
Stundum skrifuðu blöðin af mikilli virðingu um Edmonds
og starf hans fyrir hina nýju hreyfingu, og minntust þá
þess, hvílíkur maður hann var að vitsmunum, mannkostum
og þekkingu, enda var það fyrst og fremst baráttu hans
að þakka, hvílíka sigurför spíritisminn fór um Bandaríkin
á fáum fyrstu árunum. Hann hélt starfi sínu fyrir málið
áfram til æviloka, og um fárra manna nöfn í sögu sálar-
rannsóknanna leikur meiri ljómi en um nafnið hans.
J. A.