Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 16
10
MORGUNN
þegar félagið var stofnað. Þá reið vitanlega á mestu að fá
fólkið til þess að hlusta og lesa, og að leita eftir mönnum
með sálrænar gáfur, þjálfa þær og nota. Þessu starfi verð-
ur vitanlega haldið áfram, og í því erum vér einráðin. En
hinsvegar hafa óneitanlega komið fram skuggahliðar á
sumu því sálrænu starfi, sem fólk hefir farið að iðka, og
af því höfum vér átt að læra það, að það er ekki nóg að
hafa áhugann, og að engan veginn allir eru færir um að
hafa slíkt starf með höndum. Það er betra að fullyrða of
lítið en of mikið, og það er nauðsynlegt að vita, hvað má
fullyrða. Vér megum ekki gleyma því, að frumherjarnir
létu félagið heita ,,sálarrannsóknafélag“, og að með Þvl
voru félaginu frá byrjun bundnar ákveðnar skyldur um
varfærni og vakandi dómgreind. Ef menn vilja ekki hlíta
visindalegum kröfum til sannana og halda fast við þset*
eiga þeir ekki heima í félaginu, sem Einar H. Kvaran og
prófessor Haraldur Níelsson stofnuðu og mörkuðu stefU'
una fyrir. Þessu megum vér ekki gleyma, við þetta verðum
vér að halda fast. Að öðrum kosti getum vér ekki búizt við
að málefnið njóti virðingar með þjóðinni.
Vér stöndum á tímamótum, en það erum vér í rauninm
að gera hverja stund ævinnar. Vér erum stöðugt að kveðja
hið gamla og heilsa nýjum áfanga. En vér heilsum hinU
komanda með misjafnlega miklum feginleik. Oss veitist
örðugt nú að líta með miklum fögnuði til framtíðarinnm
fyrir mannkynið. En hitt dylst oss eigi, hve geysilegan þátt
spíritisminn gæti í því átt að gera framtíðina bjarta, e\
mannkynið fengist til að láta af hinni sjúku tortrygg111
og hinum óheilbrigða efa og þiggja þá leiðsögn, sem verið
er að bjóða oss frá ósýnilegri veröld. Þessi leiðsögn hefir
mannkyninu staðið til boða á öllum öldum, en sálarranh'
sóknirnar hafa opnað mannkyninu nýja möguleika til
notfæra sér þessa ómetanlegu hjálp í stríði sínu.
En mannkyninu sýnist ekki liggja í miklu rúmi að not'
færa sér þessa hjálp, það hefir meiri trú á hinum efnis
legu framförum og af því er það að súpa seyðið. Þekking'