Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 10
4
MORGUNN
Mikill rómur var gerður að máli frummælanda og tók
næstur til máls Þórður Sveinsson, geðveikralæknir. Lýsti
hann sannfæringu sinni um spíritismann og kvaðst ganga
í félagið til þess að miðla mönnum af þekkingu sinni. Var
honum þakkað með lófataki. Þá tók til máls prófessor
Haraldur Níelsson, og flutti merkileg og sköruleg hvatn-
ingarorð. Lýsti hann þeirri sannfæringu sinni, að félagið
mundi hafa mikil áhrif í andlegu lífi þjóðarinnar. Var ræðu
hans tekið með miklum fagnaðarlátum fundargesta.
Þá var borið undir atkvæði nafn félagsins og félagsstofn-
unin, og hvorttveggja einróma samþykkt.
Þá kvaddi sér hljóðs Indriði Einarsson, rithöf., og að
tillögu hans voru þessir kosnir í bráðabirgðastjórn: Ásgeif
Sigurðsson, konsúll, Einar H. Kvaran, rithöf., Haraldur
Níelsson, prófessor, Þórður Sveinsson, geðveikralækniL
Sigurjón Pétursson, Snæbjörn Arnljótsson og Sigurður Ó.
Lárusson, cand. theol.
Fundarstjóri, Ölafur Björnsson, ritstjóri, tók nú til máls-
Lýsti hann yfir því, að vitanlega ættu ekki í þessu félag1
þeir einir heima, sem þegar væru orðnir sannfærðir uih
spíritismann. Hann þakkaði starfið þeim E. H. Kv. og
Har. N. og lýsti gleði sinni yfir sigrinum, sem þeir hefðu
nú unnið eftir mikið starf. Haraldur Níelsson þakkað1
fundarstjóra og minntist föður hans, Björns Jónssonai’'
ráðherra og ritstjóra, sem af miklum drengskap hefð1
unnið fyrir þetta málefni.
Að lokum tók til máls Einar H. Kvaran. Lauk hann orð-
um sínum með þeirri ósk, að fyrir starfsemi þessa unga
félags yrði íslenzka þjóðin frjálslyndasta þjóðin í heinu-
Nú var liðið langt fram á kvöld og menn fóru glaðir heih1
og Sálarrannsóknafélag Islands var stofnað.
Þeir eru nokkurir hér innan veggja í kvöld, sem tókU
þátt í félagsstofnuninni fyrir 30 árum, og áttu þátt í þeh’11
gleði, sem þar ríkti, en ekki mun gleðin hafa verið ja^
mikil hjá neinum og frumherjunum, sem búnir voru a
vinna nærfelt hálfan annan áratug að því að kynna þetta