Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 52
46
MORGUNN
hann flytur, hún berst aðeins eftir honum eða fram með
honum. Segulorka í segulmagnaðri stöng er ekki mynduð
í henni, en getur borizt eftir henni, þegar eindir járn-
stangarinnar snúa skautum sínum í sömu stefnu. Gerum
málmstöngina glóandi heita, og hún er ekki lengur segul-
mögnuð, vegna þess að eindir hennar snúa skautum sín-
um sitt í hverja áttina. Segulorkunni er varnað að leið-
ast eftir henni unz hún hefir aftur verið segulmögnuð, en
þá hafa eindir hennar aftur hlotið eináttar skautstefnu
sína. Hliðstætt þessu hefir verið viðurkennt, að skaut-
stefnu mannslíkamans megi breyta verulega, þannig, að
meiri lífsorka og þróttur fái streymt um hann. Matar-
æði er talið auðvelda þetta, líkamsstellingar, göfugar til-
finningar og háleitar hugsanir, en yoga-iðkendurnir segja
að vissar öndunaræfingar fái miklu um þetta valdið. Ég
hefi persónulega sterka tilhneigingu til að ætla, að hljóð-
fall eða samstilling sé miklu áhrifameira en einatt er hald-
ið, og að þessu sé allt of lítill gaumur gefinn. Ég tel rétt
að segja frá einu atviki, sem mér er minnisstætt frá
skólaárum mínum, var þá á 18. ári.
Um þetta leyti var ég mjög heilsuhraustur, iðkaði stöð-
ugt íþróttir, cricket, knattspymu, tennis, leikfimi, hnefa-
leika, göngur og hlaup. 1 sumarleyfinu ferðaðist ég fót-
gangandi með herbergisfélaga mínum; við fórum fótgang-
andi frá Exeter til London. Við fórum vitanlega ýmsa
útúrkróka, en gengum að jafnaði 30 mílur dag hvern. Að
kvöldi sjöunda dagsins kom dálitið einlcennilegt fyrir
okkur. Við virtumst allt í einu vera orðnir svo undarlega
léttir, eins og okkur væri örðugt að halda okkur við jörð-
ina, að við gætum svifið í loftinu. Þessi einkennilega létt-
leika- og lyftingarkenndstóð um 10—12 mínútur. Við
reyndum báðir þetta sama og nákvæmlega samtímis, og
það varaði jafnlengi hjá okkur báðum. Þetta var óviðjafn-
anleg og ógleymanleg stund, reynsla, sem mér liður aldrei
úr minni, ólík öllu, sem fyrir mig hefir komið fyrr og
síðar. Ekki gat þetta átt eingöngu rætur að rekja til