Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Side 32

Morgunn - 01.06.1949, Side 32
26 MORGUNN Upton Sinclair, hinn alkunni ameríski rithöfundur, hefir reynzt ódeigur til að skrifa bækur, sem koma mönnum á óvart, og verja í bókum sinum mál, sem ekki eru vinsæl af almenningi. Það gerði hann að nokkru árið 1930, er hann gaf út bók sína, Mental Radio. Does it Work, and How? (Hugrænt útvarp. Starfar það, og þá, hvernig?). Bókin fjallar um rannsóknir hans á fjarhrifum, en kona hans, frú Mary Craig Sinclair, var miðillinn. Prófessor William MacDougall, fyrrum forseti ameríska sálarrann- sóknafélagsins og prófessor í sálfræði við Harvard-háskól- ann, reit formála að ensku útgáfunni, en prófessor Ein- stein skrifaði formála að hinni þýzku, og eru það hinar merkilegustu ritgerðir, eins og búast má við frá slíkum afburðamönnum. Frú Sinclair er gædd frábærum sálrænum móttökuhæfi- leika, og varð hún hans fyrst vör eftir andlát nokkurra góðvina sinna. Þessi hæfileiki vaknaði með nýjum krafti, þegar hún kynntist Pólverja einum, Jan að nafni, sem lagði stund á yoga-iðkanir og hafði verið í Indlandi og lagt þar stund á æfingar fakíranna. Hann dvaldi um skeið í heimili Sinclair-hjónanna sem gestur þeirra. Upton Sin- clair var um skeið leiður og þreyttur vegna þessarar sér- gáfu konunnar, og síður en svo að hann kærði sig um það, að hvort sem var í vöku eða svefni virtist hún geta fylgt honum eftir og sagt honum, er hann kom heim, hvar hann hefði verið og hvað hann hafði aðhafzt. Að lokum ákvað hann samt að rannsaka málið nánara. Að- ferð hans var sú, að hann gerði á pappírsblöð sex teikningar af einhverju því, er kom í huga hans. Þessi blöð voru síðan vafin saman. Frú Sinclair sat í myrkvuðu herbergi, tók nú hvert blaðið á fætur öðru, bar það upp að „plexus solaris" (fyrir neðan bringspalirnar) og skrifaði síðan eða teiknaði áhrifin, sem hún varð fyrir af hverju

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.