Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 56
50
MORGUNN
sanna framhaldslíf mannssálarinnar, hafa áður verið gefin
út, og í eitt þeirra: One Hundred Cases for Survival after
Death, sækir Víglundur Möller margar af sögum sínum.
En annars hefur hann víða leitað, og lagt mikla vinnu í að
vanda ritið sem bezt, auk þess, sem hann skrifar langan
og góðan formála fyrir bókinni.
Fyrirbrigðasögurnar, sem spíritistar telja að sannað
hafi að látinn lifir, eru orðnar geysilega margar og geymd-
ar í þúsundum bóka. Þessvegna verður vitanlega ekki
fyrir það girt, að í slíku safni sem þessu, sakni menn
margra sagna, sem þeir hefðu kosið að væru þar. En hvað
um það. Víglundur Möller hefur unnið þetta verk af mik-
illi samvizkusemi, og ekki verður annað sagt, en að hon-
um hafi tekizt vel um valið. Fagnar MORGUNN því, að
þetta rit er komið út, enda er það prýðileg bók fyrir þá,
sem vilja kynnast þessum merkilegu málum. Nokkuð get-
ur orkað tvímælis, að kaflinn um endurholdgim eigi heima
í bók um sannanir fyrir framhaldslífi, og jafnvel einnig
kaflinn um lækningar, en að öðru leyti eru hér sagðar
sögur af svipum, reimleikum, talmiðlafundum, beinum
röddum, líkamningafyrirbrigðum, andlátssýnum, ósjálf-
ráðri skrift og draumum.
MORGUNN er þakklátur hr. Víglundi Möller og útgef-
endunum fyrir bókina, og vill eindregið hvetja menn til
að kaupa hana og lesa. Bókin er stór, nærfellt 400 blað-
síður í stóru broti, en auk þess sem hún er hreinasta fróð-
leiksnáma um mál, sem alla varðar, er hún skemmtileg
aflestrar. Flestar þessar hundrað sögur eru vel og ljóst
sagðar, og vart trúi ég því, að menn grípi ekki oft til
hennar, er þeir hafa kynnst henni á annað borð, grípi til
hennar bæði til fróðleiks og jafnframt beinlínis til skemmti-
lestrar.
J. A.