Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 55
MORGUNN
49
ber fyrir augu og skynjun sjáandans, sem fólk vill hafa
leynd á og vill ekki að borið sé fram fyrir aðra. En með
þau mál verður sjáandinn að fara með þeirri varúð, sem
frú Guðrúnu Guðmundsdóttur er lagin. Þá er það enn,
að margt í sálrænni reynslu manna er svo kynlegt, svo
furðulegt og óskiljanlegt, að tvímælis getur orkað, hvort
rétt sé, að birta það almenningi. Ýmsa slíka reynslu hefur
frú Guðrún fengið, en frá henni er ekki sagt í bókinni,
svo að nokkru nemi.
Allmargir menn segja þarna frá reynslu sinni á miðils-
fundum frúarinnar og nokkrir þeirra, sem til hennar hafa
leitað lækninga, segja frá þeim árangri, er þeir telja að
náðst hafi. Er í öllu þessu mikill fróðleikur, en flestum
mun fara svo, að merkilegast þyki þeim það, sem frú
Guðrún segir sjálf um reynslu sína. Kemur þar athugun-
argáfa hennar að góðu haldi, því að mjög er fróðlegt að
kynnast því, sem hið sálræna fólk segir um ástand sitt,
er það fær dulskynjanir sínar.
Herra magister Jakob Jóh. Smári fór yfir handritið
fyrir frúna og skrifar nokkur formálsorð að bókinni. Þar
segir hann m. a.: ,. ... trúi ég ekki öðru, en að lesend-
urnir verði gagnteknir af þeim blæ einlægni og sannleiks-
ástar, sem leikur um alla frásögnina. Vér skulum fagna
þessari tilraun í þá átt, að greiða ögn úr þessu „máli
málanna," — hverri tilraun til að varpa ljósi ódauðleikans
inn í myrkur grafarinnar.“
MORGUNN flytur frú Guðrúnu Guðmundsdóttur þakk-
læti fyrir bókina, og hann vill eindregið hvetja þá, sem
ekki hafa eignazt hana enn, til að kaupa hana og lesa.
Sem vinargjöf verður þessi bók mörgum kærkomin. Isa-
foldarprentsmiðja hefur gefið bókina snoturlega út.
Þá hefur Víglundur Möller, bókhaldai'i, safnað saman
efni í bók, sem Leiftur hefur gefið út og nefnist „HUNDR-
AÐ SANNANIR FYRIR FRAMHALDSLÍFI. ‘ ‘
Slík söfn vottfestra fyrirbrigða, sem að margra dómi
4