Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 11
MORGUNN
5
hiálefni þjóðinni, herja á hleypidómana og eyða þekking-
aUeysinu. Meðan andstaðan var sterkust og þekkingar-
leysið mest, höfðu þeir orðið að fórna miklu fyrir málið,
svo miklu, að oss þætti ótrúlegt nú. Það var því enginn
Srnásigur fyrir þá, að unnt var að stofna þetta félag með
Jafn miklum myndarskap og gert var.
En hvað er nú orðið okkar starf í þrjátíu ár?
Ég skal til fróðleiks skýra hina ytri umgerð félagsins.
Fræðslufundi er búið að halda 250, þar sem oft hafa ver-
flutt löng, ítarleg fræðsluerindi um málið, og má telja
aðalerindin, sem flutt hafa verið, 260.
Eins og geta má nærri, hefir í þetta starf verið lögð
Seysi mikil vinna, og hefir þetta fræðslustarf verið höfuð-
verkefni félagsins. Það var stofnað á þeim forsendum, að
sannanir væru fengnar fyrir tilveru andlegs heims og lífi
eaannssálarinnar eftir líkamsdauðann, og til þess var það
stofnað, að flytja þjóðinni þennan sannleik, þ. e. a. s. þeim,
sem vildu gefa þessum sannleika gaum. Hversu margra
náðst hefir til með þessa fræðslustarfsemi, er vitanlega
ekki unnt að segja nákvæmlega, en þeir eru orðnir margir.
^ ýmsu hefir oltið með félagatöluna, en félagar eru miklu
fleiri nú en þeir hafa nokkuru sinni verið áður, enda eru
keir nú um sjö hundruð. Félagsböndin hafa jafnan verið
hokkuð laus, fyrirhafnarlítið að gerast félagi, og fram að
fressu sama og fyrirhafnarlaust að hætta að vera félagi.
Éeysimikill fjöldi fólks hefir verið í félaginu um lengri
eða skemmri tíma, svo að á liðnum árum eru margar
^úsundir manna búnir að vera í félaginu, langan eða
skamman tíma, og sækja þangað fræðslu. Að hve miklu
leVti sú fræðsla hefir orðið til þess að móta lífsskoðun
Þessara þúsunda, er ekki unnt að segja, en ekki orkar það
tvímælis, að félagið hefir haft mjög mikil áhrif á andlegt
lif með þjóðinni, og vér gerum oss vonir um, að auk þess
Serh það hefir kynnt mönnum sálarrannsóknamálið og
sPiritismann, hafi það lagt fram sinn skerf til þess að auka
fhjálslyndið í andlegum málum þjóðarinnar, eins og Ein-