Morgunn - 01.06.1949, Qupperneq 14
8
MORGUNN
Leaf. Þótt hann kæmi ekki hingað á vegum Sálarrann-
sóknafélgsins, voru það að mestu leyti menn úr félaginu,
sem stóðu að komu hans.
Ég minntist þess fyrr, að á fyrstu árum félagsins var
skipuð nefnd til þess að athuga möguleikana á því að fá
innlent fólk til þess að gera sálrænar tilraunir með. Af
fundarbókinni er ekki ljóst, hve mikill árangur hefir orðið
að starfi nefndarinnar, en hér var verið að leggja út á
braut, sem sjálfsagt var að fara. Þegar almenningur var
farinn að kynnast málinu, hlaut svo að fara, að fólk færi
að gera þessar tilraunir, og þá var vitanlega allra hluta
vegna æskilegt, að með tilraunirnar færu menn, sem þekk-
ingu hefðu á málinu. Það var þá þegar farið að bera á
því erlendis, að fólk færi með þessi mál, sem ekki var þess
um komið á nokkurn hátt. Frumherjarnir í félagi voru
sáu, að það hlaut að verða eitt af verkefnum félags vors,
að halda málinu innan skynsamlegra takmarka. Og að
því hefir verið unnið. Á liðnum árum hafa nokkurir miðlar
starfað beint eða óbeint á vegum félagsins. Vér minn-
umst með þakklæti manns eins og Isleifs Jónssonar. Frá
fundum Andrésar heitins Böðvarssonar eiga margir merki-
legra hluta að minnast. Ennfremur er ýmsum í fersku
minni merkilegir hlutir, sem gerðust fyrir miðlagáfu þeirra
frú Mörtu Jónsdóttur, ættfræðings, og frk. Bjargar Haf-
stein. Lengst starfaði á vegum félagsins frú Guðrún Guð-
mundsdóttir, og nú að lokum Hafsteinn Björnsson. Hefii'
aðsóknin að þessum fundum jafnan verið mjög mikil og
stöðugt farið vaxandi. Við allt þetta fólk stöndum vér í
mikilli þakkarskuld.
„Hvað er þá orðið okkar starf?“
Það leikur ekki á tveim tungum, að áhrif félagsins &
andlegt líf þjóðarinnar eru orðin mjög mikil, og viður-
kenna það einnig þeir, sem ekki álíta þau áhrif æskileg
eða holl. Yfir allan efa er hafið, að fyrir bein og óbein
áhrif frá Sálarrannsóknafélagi Islands, hafa skoðanU
manna um andleg mál, og þá einkum um dauðann og lífi®