Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Side 19

Morgunn - 01.06.1949, Side 19
Kveðja til S. R. F. í á 30 ára stofnliátíð þess. Þótt ég geti vegna vesældar minnar ekki nú sem jafnan áður á fyrri félagssamkomum vorum verið með yður sýni- legum návistum á þessari 30 ára stofnhátíð félags vors, til að gleðjast með yður, uppbyggjast og styrkjast í allri félagsstarfsemi vorri og ásetningi, — þá mun ég þó vera yður nálægur í hug og anda á þessari hátíðarstund. Eins er það líka ósk mín og bæn, að góðu, gömlu forsetarnir vorir og aðrir góðir forystumenn, sem á undan oss eru farnir fyrir lengri eða skemmri tíma, verði yður nú ná- lægir með því afli, sem þeir kunna að eiga ráð á, til að styrkja starf vort og málefni vort, sem ekki er aðeins málefni vort eða fyrir land vort, heldur alheimsmál og starf fyrir komandi frið á allri jörðu. Með þeirri innilegu bæn, að vort litla félag og vér, hver og einn, megum leggja fram örlitinn skerf til þess að svo megi sem fljótast verða, sendi ég yður kveðju mína og innilegust jólaósk. Kristinn Daníelsson.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.