Morgunn - 01.06.1949, Qupperneq 34
28
MORGUNN
öfl, sem þarna voru að verki, hafi einungis gefið heim-
kynni sínu þetta kunna nafn, vakti allt þetta mál mikla
athygli, eins og eðlilegt var. Sardou fullyrti, að sjálfur
ætti hann engan annan þátt í þessum teikningum en þann,
að hönd sín væri notuð af öðrum öflum til að gera þær.
Teikningarnar voru merktar nafni hins fræga postulíns-
gerðarmanns, Bernard Palissy, sem uppi var í Frakklandi
á 16. öld og dó í fangelsi, er kaþólska kirkjan ofsótti mót-
mælendur, fangelsaði þá, myrti og rak úr landi. Myndirnar
voru m. a. af bústöðum þeirra Palissys, Zóroasters og
Mozarts, sem þarna áttu að eiga heima, en um þetta
leyti var sú trú útbreidd, að stjarnan Júpíter væri byggð
mjög fullkomnum mannverum. Um afstöðu sína til þessa
máls birti Victorien Sardou opið bréf í franska stórblað-
inu Le Temps. Hann lýsir sjálfum sér sem efasömum áhorf-
anda að þessu verki, en segist smám saman hafa neyðst
til að viðurkenna, að spíritisminn sé að fást við stað-
reyndir, sem vísindin geti enn sem komið er enga skýring
gefið á.
1 bréfi, sem hann skrifaði hium alkunna leikhússtjóra
Charles Frohman, kveður hann fastara að orði og segir-
,,Það er á allra vitorði, að um fjörutíu ára skeið hefi
ég verið afburða miðill sjálfur og hefi orðið vottur að
dásamlegum fyrirbrigðum í heimili mínu. Á slaghörpuna
mína hefir verið leikið, án þess nokkrar jarðneskar hendur
snertu hana. Blóm hafa fallið úr loftinu og niður á borðið
mitt, og öllu þessu hefir til leiðar komið miðilsgáfa mín-
Menn hafa ekki þorað að láta róginn elta mig, eins og orðið
hefir hlutskipti annarra miðla, og menn hafa ekki þorað
að segja um mig það, sem þeir voru nógu ósvífnir til
segja um herra Home, að ég sé svikari."