Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Page 35

Morgunn - 01.06.1949, Page 35
UM LYFTINGAFYRIRBRIGÐI, EFTIR EINAR LOFTSSON. Eins og öllum þeim er kunnugt, sem hlýddu á erindi enska sálarrannsóknamannsins, Horace Leaf, fjallaði eitt þeirra um hin svonefndu lyftingafyrirbrigði, er gerzt hafa hjá ýmsum miðlum. Myndir þær, er fyrirlesarinn sýndi af þessum fyrirbrigðum, máli sínu til skýringar sýndu og jafnframt öryggisráðstafanir þær, sem rannsóknamenn- irnir höfðu við rannsóknir sínar, sem óvefengjanlega tryggðu, að brögðum eða blekkingum var ekki unnt að beita, er þessi fyrirbrigði gerðust. Fyrirbrigði þau, sem í þennan flokk er skipað, eru tvenns konar: firðhræringar (telekinesis) og er orð þetta notað um þau fyrirbrigði, er hlutir hreyfast úr stað (lárétt) án þess, að kunn eða sýni- leg orsök valdi tilflutningi þeirra. Hin eru lyftingar (levita- tion), en orð þetta er notað um þau fyrirbrigði, er hlutum er lyft frá jörðu eða gólfi af einhverju ósýnilegu afli eða bá lifandi mönnum, þó að þau fyrirbrigði séu sjaldgæfari. Naumast er ástæða til að taka það fram, að orðin hafning eða lyfting á hlutum eða lifandi mönnum frá jörðu eða gólfi, nota ég hér aðeins um þær staðreyndir einar, þegar slíkar lyftingar eiga sér stað vegna verkana einhvers ósýnilegs máttar eða óskynjanlegrar orku. Fyrirbrigðum þeim, sem hér um ræðir, er Venjulega skipað í þann flokk hinna spíritistisku fyrirbrigða, sem nefnd eru hlutræn eða efnisræn. Ekki verður lengur ve- fengt, að slík fyrirbrigði hafa gerzt og gerast, en um þau

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.