Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Side 80

Morgunn - 01.06.1949, Side 80
74 MORGUNN það, að einn vina minna, sem viðstaddur var miðilsfund hjá Goligher-hringnum, sá borð hefjast í loft upp og standa þar kyrrt, enda þótt fjórir sterkir menn beittu öllu afli til þess að reyna að draga það niður. Það er fullnægjandi staðfest, að fyrir kom það á þesskonar fundum, að mið- illinn, ungfrú Goligher, sem látin var sitja í transinum á vogarpalli, léttist um allt að fimmtán pundum meðan transinn stóð yfir, en það er ljóst, að orkan, sem hinar ósýnilegu verur réðu yfir og beittu á fundunum var miklu meiri en það, og að þær hafa kunnað einhver sérstök tök á því, að hagnýta sér efnið, sem út af líkama miðilsins streymdi. Á sumum fundunum hjá miðlinum D. D. Home var krafturinn svo-mikill, að húsið, sem setið var í, lék á reiðiskjálfi, eins og járnbrautarlest væri á ferðinni undir því. Nú erum vér komnir að leyndardómi, sem snertir bein- iínis það lögmál reimleikafyrirbrigðanna, sem mjög væri æskilegt að finna. Þrátt fyrir það að draugarnir hafa stundum yfir að ráða mikilli orku er það bersýnilegt, og ég hygg að allar trúverðugar sögur um þessi efni sýni það, að þeir geta ekki notað þessa orku að eigin geðþótta til þess að eyðileggja og valda öðrum tjóni, ef tilgangur þeirra er enginn annar en sá einn. Þetta mætti sýnast að vera í ósamræmi við sögurnar af brotnu líkkistunum, en vera má, að þar hafi alls ekki eigin geðþótti þeirra ráðið og ætlun þeirra hafi verið einhver önnur en sú, sem sýndist af verknaði þeirra vera. Hér er saga, sem varpar nokkuru ljósi yfir það, sem ég á við. Einn af góðvinum mínum, rómversk kaþólskur prestur, maður, sem enginn kunnugur mundi væna um ósannindi, var sendur til að hvila sig í afskekktu húsi við ströndina, en í húsi þessu höfðu aðrir prestar hvað eftir annað dvalið í sama tilgangi. Einu sinni eða tvisvar komu gestir til hans til þess að hlynna eitthvað að honum, meðan hann dvaldist þarna, að öðru leyti var hann algerlega einn, nema hvað í húsinu var gömul þjónustukona. Fáum dögum

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.