Morgunn - 01.12.1962, Blaðsíða 11
MORGUNN
97
ástæða er til að ætla líkt um persónuleikann, sem nefnir
sig Rögnu og fjölda fundarfólks á mörgum árum hefir
þótt vænt um vegna yndislegrar framkomu hennar og
viðmóts. Þá er persónuleikinn, sem nefnist Finna, fund-
argestum Hafsteins ekki hvað sízt minnisstæð, enda ver-
ið mjög við fundina riðin í 25 ár og e. t. v. minnisstæð-
ust allra þessara persónuleika þeim, sem að miðilsstarfi
H. B. hafa komið. Ritstj. Morguns átti hlut að því
snemma árs 1950 voru tilraunir hafnar sem bráðlega
leiddu til þess að Finna fór að reyna að færa sönnur á,
hver hún væri og hver hún hefði verið í jarðlífinu. Sú
langa saga, sem í bókinni er sögð af jarðlífi hennar og
framlífi eftir dauðann, verður sennilega mörgum hugð-
næmt lestrarefni, en sönnunargildið, að venjulegum leið-
um metið, er næsta lítið, þótt nokkra stoð megi finna í
kirkjubókum prestakalls þess, sem hún tjáist hafa átt
heima í. Atriði í ástasögu hennar, eru þó fyrir utan það,
sem hugsanlegt er að geti verið rétt. Eins og það, að
heimilisfólki á Barði í Fljótum, og þar með Finnu, hafi
verið ókunnugt um það að presturinn, sem flytzt þangað
úr næsta prestakalli, Hvanneyri í Siglufirði, var kvænt-
ur maður og átti með konu sinni 5 börn. Sú saga er tæp-
lega trúanleg öðrum en þeim, sem reiðubúnir eru til að
trúa öllu, af því að það kemur af vörum miðils.
Fullyrðingar, án þess að röksemdir fylgi, rýra gildi
hverrar bókar um sálræn mál. Lesendur munu furða sig
á því, að í bókinni er staðhæft, að Bjarni Pálsson land-
læknir stundi enn læknisstörf. Rökin eru engin. Það
var þetta, sem Einar H. Kvaran kallaði í gamansemi
„uppástönd“ og honum var meinilla við.
« , . , öðrum fyrirbærum miðilsins hefði
átt að gera betn skil, eins og t. d.
hæfileika Hafsteins Bj. til hlutskyggni. Meðan hann
vann á vegum S.R.F.l. gerðu þrír trúnaðarmenn stjórn-
arinnar markvissar tilraunir með þennan hæfileika mið-
ilsins. Þrennskonar hlutir voru lagðir fyrir hann. 1
7