Morgunn


Morgunn - 01.12.1962, Side 16

Morgunn - 01.12.1962, Side 16
Sveinn Víkingur: Próf. Tenhaeff og miðillinn Croiset ★ Þær tvær greinar sálarfræðinnar, sem einkum beinast að hinum dulrænu fyrirbærum sálarlífsins, þar á meðal ýmiskonar skynjunum, áhrifum og þekkingu, sem ekki virðist berast til manns eftir venjulegum leiðum með að- stoð skynfæranna, eru á erlendum málum nefndar Psyckoanalysa og Parapsyckology eða Paragnosis. Psyckoanalysan, sem á íslenzku hefur verið nefnd sál- greining, er í því fólgin að greiða sundur ýmsa flókna þætti sálarlífsins, sálflækjur sem oft valda meiri og minni geðtruflunum. Sem brautryðjendur á því sviði má einkum nefna menn eins og Freud og síðar menn eins og dr. Jung sem nú er nýlega látinn. Parapsyckologian er aftur á móti vísindaleg rannsókn hinna dulrænu hæfi- leika, s. s. skyggni og fjarhrifa o. fl. og sem ég hér leyfi mér að kalla sálkönnun og þá sálkönnuði, er við þessar rannsóknir fást. Er það í samræmi við það, að við nefn- um það landkönnun að rannsaka ókunn lönd og þá land- könnuði er við það fást. Því eiginlega er hér um það að ræða, að kanna lítt þekkt svið sálarlífsins. Það sem segja má að skilji einkum á milli sálkönnunar og sálarrann- sókna eins og við venjulega skiljum það orð er þetta, að sálkönnuðurnir beita sér enn sem komið er ekki að þeim þættinum sem snertir sambandið við framliðna og eru jafnvel sumir alveg andvígir spíritismanum. Eigi að síð- ur eru rannsóknir þeirra harla merkilegar, og ég er ekki í vafa um að þær muni og hljóti að leiða þá inn á þau sviðin senn hvað líður.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.