Morgunn - 01.12.1962, Qupperneq 17
MORGUNN
103
Af þeim mönnum, sem við þessar rannsóknir fást nú,
og hafa við þær lagt mikla alúð og kostgæfni, vil ég að-
eins nefna menn eins og Dr. J. B. Rhine í Bandaríkjun-
um og dr. Björkhem í Svíþjóð og Próf. Tenhaeff við há-
skólann í Utrecht í Hollandi.
Dr. Tenhaeff mun nú vera eini maðurinn, sem komið
hefur á fót sérstakri háskóladeild, sem eingöngu held.ur
uppi rannsókn og kennslu í sálkönnun eða Parapsycko-
logy og hefur hann veitt þeirri deild forstöðu frá stofn-
un hennar 1953. Hann er nú 67 ára gamall, og hefur
fengizt við rannsólcnir einkum fjarskyggni og fjarhrifa
frá því 1926. Hann hefur á síðustu árum rannsakað 47
menn, sem gæddir hafa verið dulrænum hæfileikum 26
karla og 21 konu.
Próf. Tenhaeff gerir sér far um að leita uppi allt það
fólk í Hollandi sem gætt er dulrænum hæfileikum. Síðan
prófar hann þetta fólk til þess á vísindalegan hátt að
ganga úr skugga um hæfileika þess. Og þá, sem fram úr
skara, tekur hann beinlínis í þágu stofnunar sinnar og
ræður þá þangað sem fasta starfsmenn. Prófessorinn
heldur því fram, og hefur þegar sannað það áþreifan-
lega, að þessa dularhæfileika sé unnt að nota til margvís-
legra nytsamra hluta. Meðal annars til þess að finna
týnda hluti, upplýsa ýmsa glæpi og fmna fólk, sem hef-
ur horfið og ekkert spurzt til o. s. frv. Er nú þegar svo
komið, að til stofnunar hans er leitað ekki aðeins af
lögreglunni í Hollandi í flóknum málum heldur af fjölda
einstaklinga víðsvegar að úr öllum heiminum.
Einn af frægustu skyggnimiðlum, sem hann nú hefur
í þjónustu sinni heitir Croiset, og hefur hann ferðast
með hann til margra landa til þess að láta vísindamenn
þar einnig rannsaka hæfileika hans. Croiset er aðeins 51
árs en hefur verið undir handarjaðri próf. Tenhaeffs
síðan 1946. Gáfur hans eru frábærar og enginn getur
ennþá skýrt það, hvernig hann fer að því að vita oft og
tíðum bæði orðna hluti og óorðna. Og honum virðist oft