Morgunn


Morgunn - 01.06.1972, Side 28

Morgunn - 01.06.1972, Side 28
26 MORGUNN Þegar lögreglumennirnir voru komnir til liöfuðstöðvanna, ákváðu þeir að tala aftur við Pelle. Hann var — eins og Ham- let — hin mikla ráðgáta. Var hann heill á geði eða vitfirrtur? „Við erum nýbúnir að tala við vin yðar Bjöm Nielsen,“ sagði Christensen. „Hann segir, að þér hafið stolið reiðhjólinu hans til þess að nota það við ránið. Ef hann er svona góður vinur yðar, hvers vegna stáluð þér þá af honum?“ Pelle pýrði saman augun eins og til þess að leita svars innra með sér við þessu vandamáli. „Ekki spyrja mig þessarar spurn- ingar. Ég get ekki sagt yður það,“ tautaði hann. Og svo var engu líkara en „góði engillinn“ hans hefði þrýst á hnapp. And- lit Pelle varð alveg svipbrigðalaust og hann sagði eins og vél- brúða: „Nielsen er saklaus. Ég gerði það. Ég man það núna. Ég tók reiðhjólið úr bílskúmum lians. Ég tók hjólið til þess að ræna bankann. Ég rændi bankann. Ég er sekur.“ Aftur lokaðist leiðin fyrir þeim. Þá datt geðlækninum í hug það ráð, að yfirheyra Hardrup með Nielsen í sama herbergi. Christensen féllst á þessa ráðagerð og klukkan tiu morguninn eftir yfirheyrði hann Pelle fyrir framan Nielsen. Spurningarn- ar voru þær sömu og spurt hafði verið margoft áður, en lækn- irinn hafði miklu meiri áhuga á að horfa á Nielsen en hlusta á sömu svörin. Nielsen starði á Palle, hallaði sér áfram í stólnum með oln- boga á hnjánum. Hann krosslagði handleggina og lét hendur hanga á öxlum, og myndaðist þannig fullkomið X. „Þetta er enginn staður til þess að sitja eins og hengilmæna,“ sagði læknirinn við Nielsen. „Sitjið þér beinn.“ Neielsen settist þá teinréttur. En hann krosslagði fætur sína og hélt áfram að stara í augu Pelle. Þegar rannsóknarmennirnir eftir þriggja stunda þrotlausar yfirheyrslur báru saman athugasemdir sinar, komust þeir að eftirfarandi niðurstöðum: 1) I hvert sinn sem Pelle sá Nielsen mynda X með því að krossleggja handleggi, fætur, fingur o.s.frv. þá játaði hann á sig glæpina og lýsti Nielsen algjörlega saklausan. 2) Þegar þess var krafizt, að Nielsen myndaði enga krossa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.