Morgunn - 01.06.1972, Blaðsíða 80
78
MORGUNN
Þareð þessi rit eru nú ófáanleg, er mikill fengur að þessari
nýju bók.
Höfundur bendir réttilega á það í uppbafi inngangsorða
sinna, að ef til eru algild sannindi, verða þau að vera jafnsönn
i dag og á morgun. Sönn heimspeki verði að standast timans
tönn.
Hinn vitri og fjölfróði rithöfundur Aldous Huxley hefur
sýnt það ljóslega með bók sinni Perennial Philosophy, þar sem
hann dregur saman vizku höfunda ýmissa alda. Hann leggur
út af orðum þeirra, tengir hugsanirnar samtímanum og sýnir
frarn á, hvernig sannleikurinn blivur, er jafngildur í dag og
fyrir mörgum öldum. Þess vegna kallar hann bók sína Sígilda
heimspeki.
Það sama kemur glögglega í ljós við lestur þessarar ágætu
bókar Gunnars Dal. Hún er hlaðin lifsvizku, og því þrotlaust
íhugunarefni hverjum hugsandi manni. Fagurt málfar prýðir
þetta rit. Þá kemur sér og vel, að höfundur er sjálfur ljóðskáld,
þegar hann þarf að vitna í bundið mál. En í þeim efnum hefur
hann áður unnið afbragðsgott verk með þýðingu sinni á Spá-
manninum eftir Kalil Gibran.
Á þessum tímum hervæðingar og gereyðingarvopna, minnir
þessi bók okkur á þetta: „Meiri sigurvegari en sá, sem sigrað
hefur þúsund menn þúsund sinnxun, er sá, sem sigrað hefur
sjálfan sig. Að sigra sjálfan sig er meiri sigur en að sigra heim-
inn.“ Og „Maður er ekki mikill vegna þess að hann treður
aðra undir hæl sínum. Aðeins sá, sem hefur samúð með öllu
sem lifsanda dregur, — aðeins sá einn er mikill.“
í sútrum Patanjalis segir: „Sjálfsögun, sem eyðir óhrein-
leika, vekur dulin öfl likama og sálar.“ Og 44. sútra hljóðar
svo: „Andleg fræði koma manninum í snertingu við sál sína.“
Þessi merka bók Gunnars Dal hefur vissulega að geyma hin
mikilvægustu andleg fræði, og lesandi mun fljótt finna, að þau
koma honum í snertingu við sál sína.