Morgunn - 01.06.1972, Blaðsíða 48
SÉRA BENJAMÍN KRISTjÁNSSON:
GERARD CROISET OG
HUGSKYNJANIR HANS
Próf essossdótt-
írin, sem
Kansas.
Carol hét hún, hávaxin og aðlaðandi tuttugu
'°r\\ og fjögurra ára gömul stúlka, dóttir háskóla-
kennarans Walter E. Sandelius og konu hans,
sem bjuggu að 1120 Missisippi stræti, Law-
rence í Kansas. Hún hafði fengið taugaáfall og dvalizt um tíma
í sjúkrahúsi i Topeka í Kansas. Hinn 18. október 1959, hvarf
hún af sjúkrahúsinu og gat enginn gert sér i hugarlund, hvað
af henni hefði orðið. Lögreglan í bænum leitaði að henni ár-
angurslaust.
Faðir hennar, sem kennt hafði stjórnlagafræði við háskól-
ann í Kansas um fjörutíu ára bil og var í háskólaráðinu, var
ekki líklegur til að rasa fyrir ráð fram. Hann hafði á sínum
tíma fengið Rodes-námsstyrk, tekið próf við Oxford háskóla á
Englandi og við Brooklin stofnunina í Washington og verið
formaður nefndar, sem endurskoða átti stjórnskipun í Kansas-
fylki.
„Auðvitað vorum við hjónin ákaflega áhyggjufull, þegar
lögreglunni tókst ekki að finna Carol,“ sagði dr. Sandelius við
rithöfundinn Jack Harrison Pollack, sem segir frá þessum at-
burði i bók sinni um Croiset. „Ljósmyndum af Carol hafði ver-
ið dreift um allt Kansas og nálæg fylki. Og eins og vant er að
vera, fengum við flugufregnir hingað og þangað að, frá fólki,
sem þóttist hafa séð Carol í þessari borg eða annarri. Við ók-
um mörg hundruð mílur til að reyna að hafa upp á henni, en
allt kom fyrir ekki. Hún var horfin, eins og jörðin hefði gleypt
hana, og lét hvergi eftir sig nokkur spor.“
„Þegar þannig var liðinn hálfur annar mánuður, vorum við