Morgunn - 01.06.1972, Síða 58
56
MORGUNN
Nú var innsiglið brotið að hinu umslaginu og tók sérhver
þátttakandi eitt spjald úr hendi ungfrú Nicky Louwerens um
leið og hann gekk upp. En við dyrnar á stofunni þar sem prófið
fór fram, leit Annet systir hennar eftir því, að hver maður tæki
sér sæti, eftir þvi sem spjald hans sagði fyrir um. Dr. Tenhaeff
varaði menn við að snerta aðra stóla en þá sem hefðu það núm-
er, sem þeir ættu að sitja í, þvi að slíkt gæti haft áhrif á ár-
angurinn.
Eftir að allir voru komnir í sætin, hringdi Gerard Croiset
d}rrabjöllunni og var vísað í salinn. Hafði hann ekið 36 mílna
leið frá Utrecht til Hague til þess að ekki væri hann kominn
fyrr en kl. 8.15. Þetta átti að útiloka möguleika á því, að nær-
vera hans gæti haft nokkur áhrif á val stólanna.
Nú var fjölritaða skýrslan lesin hátt, atriði fyrir atriði, og í
hvert skipti, sem frú M.J.D., en það var konan, sem fengið
hafði 9. sæti, var spurð, hvort nokkuð af þessum tuttugu og sex
ára gömlu hugskynjunum Croisets gæti átt við hana, svaraði
hún ávallt: „Já, margar þeirra.“ Og af því að ekkert af þessu
virtist eiga við nokkurn annan í þessum hópi, var því slegið
föstu, að hún væri konan, sem Croiset hafði séð.
Bæði af því, sem opinberlega var kannazt við þetta kvöld
þann 1. febrúar og af einkaviðtali við hana í Amsterdam 18.
mai og loks af fundi með henni og manni hennar í sálarrann-
sóknastöðinni í Utrecht, sem tekinn var á segulband 20. júní
1957, upplýstist eftirfarandi:
1. atriði: Frú M.J.D. var 42 ára gömul, glaðleg, dugleg og
lifleg kona, sem hafði mikinn áhuga fyrir uppeldi barna. Þeg-
ar hún var lítil stúlka sagði hún oft, að hún vildi eiga stóran
kastala með hundrað smákrökkum.
2. Foreldrar hennar höfðu skilið. Faðir hennar sem var
mjög tilfinninganæmur, hafði starfað í hollenzku Austur-
Indíum. Þegar hann við og við kom til Hollands, fór hann oft
með dótturina í „circus“ í Scheveningen. Foreldrar frú D.
höfðu hvort fram hjá öðru.
3. Á barnsaldri heimsótti frú D. oft bændabýli, en aðal-
framleiðslan þar var smjör en ekki ostur. Húsbruninn, sem