Morgunn - 01.06.1972, Blaðsíða 64
62
MORGUNN
siðan ckki átt afturkvæmt i vanabundinn hugtakaheim þeirra
fræða. Þess vegna hefur sálfræðinga yfirleitt ekki fýst að við-
urkenna fyrirbærin.“
Það er því ánægjulegt að geta nú skýrt frá því, að viðhorf
visindastofnana eru nú óðum að breytast til þessara mála. Er
nú jafnvel svo komið, að ungur íslenzkur doktor í sálfræði hef-
ur verið sérstaklega styrktur af Virginíuháskóla og Sálarrann-
sóknafélaginu í New York til slikra rannsókna hér á landi. Dr.
Erlendur Haraldsson vann s.l. vor að rannsóknum á miðils-
hæfileikum Hafsteins Björnssonar. Þá hafa sömu aðilar einnig
veitt honum styrk til rannsókna á skyggni (einkanlega skyggni
deyjandi fólks) bæði hér á landi og á Indlandi.
Dr. Erlendur sat i vor 50 miðils- og skyggnilýsingafundi með
Hafsteini í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum. Allt, sem
fram fór á þessum fundum, var hljóðritað til úrvinnslu síðar.
Dr. Erlendur var mjög ánægður með samstarfið við Hafstein
og taldi að fundirnir hefðu tekizt vel.
1 viðtali við ritstjóra Morguns sagði dr. Erlendur, að rann-
sóknir á skyggni devjandi fólks þættu nú mjög athyglisverðar.
Þær þykja hafa leitt í ljós, að þau fyrirbrigði að deyjandi fólk
segist stundum sjá látna vini og kunningja skömmu fyrir and-
látið, eru ekki sjúkleg, heldur hugsanlega sama fyrirbæri og
skyggnigáfa einstakra manna, eins og t.d. Hafsteins Björns-
sonar, sem virðist gæddur henni í ríkum mæli að sögn dr. Er-
lends. Þykir þetta svo merkilegt rannsóknarefni, að það hefur,
eins og fyrr var getið, leitt til þess, að bandaríska Sálarrann-
sóknafélagið og Virginíuháskóli hafa ákveðið að styrkja slikar
rannsóknir í tveim löndum: íslandi og Indlandi. Rannsóknirn-
ar á Indlandi verða framkvæmdar i ár, en hér á landi eru þær
fyrirhugaðar á næsta ári.
Dr. Erlendur stundaði nám í Þýzkalandi og lauk prófi 1969.
Síðan starfaði hann við Institute of Parapsychology í Durham
í Bandaríkjunum hjá Rhine prófessor og síðan við Virginíu-
háskóla í Charlotteville.
Doktorsritgerð Erlends, sem hann varði í febrúarmánuði s.l.
í Freiburg i Þzkalandi, nefnir hann: Vasamotorische Reak-