Morgunn - 01.06.1972, Blaðsíða 33
DÁLEIÐSLA Á VINSTRI VEGUM
31
klippa hárið og ég sá ný sólgleraugu i frakkavasanum hans.
Auk þess hafði hann óvenju mikla peninga, sem hann gat ekki
gert grein fyrir. Þegar fréttirnar af þessu komu i útvarpinu,
þá slökkti hann á því bálvondur, og þegar ég spurði hann um
það hvers vegna hann gerði það, þá missti hann svoleiðis stjórn
á skapi sínu, að ég hafði aldrei séð annað eins. Og það var
reyndar fleira sem gerðist daginn fyrir ránið. Þegar ég kom
heim úr vinnunni voru sigarettustubbar i öskubökkunum, sömu
tegundar og Nielsen reykir. Ránsdaginn var mér sendur reikn-
ingur frá matvörubúðinni fyrir gini og papriku. Pelle hvorki
drekkur né reykir, og ég er því viss um að Nielsen var hérna
og átti einhvern mikinn þátt í glæpnum sem Pelle framdi.“
Það sem eftir var þessarar yfirhejæslu kom fátt fram nýtt,
en læknirinn yfirgaf íbúð frú Hardrup allánægður. Brotin i
þessari ráðgátu voru farin að skapa nrynd, en sú mynd var
ófögur.
Næst fór læknirinn til íbúðar Nielsens, þar sem eigandinn
lét fara vel um sig í hinni vistlegu dagstofu. Vissulega sagðist
hann drekka gin og papriku, eins og fjöldi annara manna. Og
vitanlega heimsækti hann oft Pelle vin sinn, veslinginn. Það
gæti svo sem vel verið, að hann hefði verið þar daginn fyrir
ránið, en það væri svo langt síðan, að ómögulegt væri fyrir sig
að muna hvaða dag það hefði verið.
Lækninum, sem vandlega virti Nielsen fyrir sér, var efst i
huga háll áll og hættulegur, með stingandi litlu augun, sem
negldu fólk við sæti sitt.
Þegar læknirinn sneri aftur til höfuðstöðvanna, var Christen-
sen lögregluforingi i talsverðu uppnómi. Upp hafði komizt, að
Pelle hafði daglega fengið bréf frá Nielsen. Efni þeirra var vin-
samlegt og sakleysislegt. En í hverju bréfi var stafurinn X,
stundum sem undirskrift, stundum sem skreyting á bréfhausn-
um. Og í einu bréfinu var innihaldið ekkert annað en þetta:
A þögn X.
Þegar farið var að íhuga þetta spor nánar kom í Ijós, að X
voru krotuð á veggina í klefa Pelle. Einn hinna fanganna við-
urkenndi fúslega, að Nielsen hefði fært honum sigarettur og