Morgunn - 01.06.1972, Síða 65
RITSTJORARABB
63
tianen als lndikatoren auss ersinnlicher Wahrnehmung. Hún
fjallar um fjarhrif.
Dr. Erlendur liefur lofað Morgni að fá til birtingar ýmislegt
í sambandi við þessar merku rannsóknir og væntir tímaritið
góðs af samstarfi við þennan unga sálvísindamann í framtíð-
inni. —
. .. . Brezki lækningamiðillinn frú Joan Reid, sem
MiðUsstarfsemi , . ;3 x , ,
- sagt var ira i siðasta heiti Morguns, heiur
avegumSRFl. e ,. , , , x -ii *
með starii smu her unmð ser miklar og vero-
skuldaðar vinsældir með hinu árangursríka og merka starfi
sínu, en síðustu heimsókn hennar lauk hér um jólin í vetur. —
þar sem mikill fjöldi fólks hafði ekki fengið tækifæri til að
hitta frúna þegar hún var hér síðast, varð að ráði að hún kæmi
hér aftur hið fyrsta. — Þetta hefur samt dregizt þar til nú,
m.a. vegna heimsóknar sem frúin fór til Svisslands, — en
hins vegar var hún væntanleg hingað nú um miðjan maí. Hún
mun þá hitta eins marga og kostur er á, af þeim, sem ekki
komust að áður, en sökum þess hve þeir eru margir, verður
ekki mögulegt að veita nema hluta úrlausn að þessu sinni, eða
þeim, sem brýnasta þörf hafa fyrir hjálp hennar.
Frk B"’ miðill hefur nú starfað með mjög góðiun ár-
a. ’ .... ’ angri á vegum SRFÍ, — í haust og til janúar-
uiaísdottir , * , « ,, ,^ » m *,v *
loka 1 iritimum, en siðan, eins og vikið var aö
í síðasta Morgni, hefur hún hætt öðrum störfum og helgað sig
miðilsstarfinu eingöngu. Hefur liún haldið reglubundið átta
fundi í viku fyrir félagsmenn, nýja og gamla, en auk þess hef-
ur hún alltaf haldið einhverja aukafundi í sambandi við sér-
stök verkefni. — Hefur hún sýnt mikla fórnarlund í þessu sam-
bandi og ávallt verið boðin og búin til hjálpar án tillits til per-
sónulegra aðstæðna, og er samstarfið við hana einstaklega
ánægjulegt og allt hennar framlag mjög þakkar vert. — Björg
hefur ákveðið að taka sér mánaðar sumarfri í júlimánuði, en
hún hefur einnig lýst sig fúsa til að fara í heimsóknir til sálar-
rannsóknafélaganna úti um land í júní og að loknu sumarfrí-
inu í ágúst. Er þetta mál nú til athugunar við félögin úti á
landi. Er það fagnaðarefni, að Björg skuli vilja takast verkefni