Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1983, Side 10

Faxi - 01.12.1983, Side 10
Stapafell — Keflavík Nytsamar jóla- og gjafavörur Litasjónavörp m/fjarstýringu Kasettutæki - Videotæki Husqvarna saumavélar Toyota saumavélar Örbylgjuofnar Kodak diskmyndavélar Polaroid myndavélar - Sjónaukar Vasatölfur—Timex úr Tölvuspil, 35 geröir Ritvélar - Reiknivélar Grillofnar- Brauöristar Hraögrill- Brauðgrill Hrærivélar-Handþeytarar Bing & Gröndahl matar- og kaffistell Arabia matar- og kaffistell Jóla- og mæðraplattar Kristall — Silfurplett Styttur og glös í úrvali Leikfangaúrval - Aöventuljós Jólastjörnur - Jólatré Jólaljósasamstæður Muniö jóla- og kertamarkaðinn í kjallaranum Loftljós - Standlampar Veggljós - Borðlampar Skrifboröslampar- Eldhúsljós Stakir skermar STAPAFELL HF. Sími 2300 og 1730 HÚSAMÁLUN Tökum aö okkur alhliða húsamálun á minni og stærri verkefnum. Nordsjö-málningarvörur í úrvali. Litablöndun - efnissala. Óska öllum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þakka viðskiptin á liðnu ári. Birgir Guðnason, málarameistari Grófin 7, Keflavík, sími 1950 Samkvæmt þessu yfirliti er raf- orkunotkun á Suðumesjum um 23 megavött. Háspennulínan á Suðumes var nær full lestuð 1980, en með til- komu raforkuframleiðslunnar í Svartsengi, 6-7 megavött, fékkst frestur á byggingu nýrrar línu í nokkur ár. Það er álit stjómar Hitaveitunnar að mögulegt sé að virk ja 7-11 megavött í viðbót með þeirri gufu sem nú er sleppt lausri. Þetta telja þeir ekki aðeins mögulegt, heldur nauðsynlegt til verndar mannvirkjum í Svarts- engi. Einnig ber þess að geta að á þessu ári var boruð hola í Eldvörp- um af Hitaveitunni í samvinnu við Landsvirkjun sem er talin gefa 20 megavött eða í kringum 13 - 15 megavött til rafmagnsframleiðslu. A það má einnig benda að ný hola á Reykjanesi sem Sjóefnavinnslan lét bora í ár gefur aðeins meira af sér. Þannig er nokkuð ljóst að gufuafl er fyrir hendi í Svartsengi, Eldvörpum og á Reykjanestá til framleiðslu á raforku sem er tvis- var sinnum meiri en orkuþörf Suð- urnesja, Keflavíkurflugvöllur meðtalinn, eða um 45 megavött. Að sjálfsögðu verður að huga að því, hvort að slík framleiðsla pass- ar inn í orkuþörf og orkubúskap landsins, en auðsætt er að nauð- synlegt er að hafa góða samvinnu og yfirsýn og jafnvel samstýringu á orkuframleiðslunni, svo að þessi auðlind okkar nýtist landsmönn- um sem best. Undirbúningur að frumvarpi Þann 11. ágúst 1982, skipaði iðnaðarráðherra, Hjörleifur Gutt- ormsson, eftirtalda í nefnd til að semja frumvarp til laga um orkubú Suðurnesja í samræmi við ályktun Alþingis3. maí 1982: Eiríkur Alexandersson, tilnefndur af Hitaveitu Suðumesja. Þóroddur Th. Sigurðsson, til- nefndur af Hitaveitu Suðumesja. Albert K. Sanders, tilnefndur af S.S.S. Margeir Jónsson, tilnefndur af S.S.S. Ragnar Aðalsteinsson, hrl., og var hann jafnframt skipaður formaður nefndarinnar. Boðað var til fundar 27. ágúst ““ 1982 með bréfi, en síðan var sá fundur afboðaður í gegnum síma. Nefndin kom síðan ekki til fyrsta fundar, þrátt fyrir eftirgang nefndarmanna, fyrr en 27. janúar 1983. Nokkrir fundir voru síðan haldnir um veturinn, safnað var saman ýmsum gögnum ársreikn- ingum og skýrslum. Nefndin kom síðast saman til fundar 19. maí og má segja að verkefnið hafi verið i biðstöðu og koma þar til Alþingis- kosningar og stjórnarskipti. Eftir umræður og skoðanaskipti í nefndinni, tók ritari nefndarinn- ar, Gísli Gíslason, hdl., ásamt for- manni saman efnisleg frumdrög að efni frumvarps. Með tilliti til þess að þingsályktun gerði ráð fynr samningu frumvarps um Orkubu Suðurnesja, hélt nefndin sér við það nafn, en Orkuveita Suður- nesja, var það nafn sem ekki var * síður og kannski frekar tamt a tungu nefndarmanna. Gera má ráð fyrir að textagerð frumvarpsins taki ekki langan tíma, en hins vegar er nokkurt verk að endurmeta rafdreifikerfi rafveitnanna og leysa þau mál sem snerta Rafmagnsveitur ríkisins. Verði nú þegar tekið til hendi, er ekki óraunhæft að gera ráð fynr að Orkuveita eða Orkubú Suður- nesja geti orðið að veruleika um áramótin 1984- 1985. Skrifstofustarf Skrifstofumaður óskast til almennra skrif- stofustarfa hálfan daginn á skrifstofu Vatns- leysustrandarhrepps. Skriflegar upplýsingar er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf, sendist undirrituðum fyrir 15. desembernk. Sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps 210-FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.