Faxi - 01.12.1983, Blaðsíða 23
Skúli Magnússon
Bamastúkan Nýársstjaman 80 ára
Fyrir framan videóið.
Næstkomandi nýársdag 1984,
verður barnastúkan Nýársstjaman
nr. 34 í Keflavík 80 ára. Stúkan er
elsta stafandi félagið í Keflavík.
Hún var stofnuð á nýársdag árið
1904.
Árið 1886 höfðu félagar í stúk-
unni Voninni nr. 15 í Keflavík gert
tilraun til að stofna barnastúku, en
ekki tekist. í mars 1888 gerðu
Vonarfélagar aðra tilraun og
stofnuðu barnastúkuna Barna-
lukku nr. 6. Starfaði sú stúka með
hléum fram yfir aldamót.
í rúm tvö ár starfaði engin
bamastúka í Keflavík. En á nýárs-
dag 1904 var stúkan Nýársstjama
stofnuð. Aðalstofnandi hennar
var Ágúst Jónsson, síðar hrepp-
stjóri. Á stofnfundinum gengu inn
14 börn auk fullorðinna félaga úr
stúkunum Voninni og Haföldu.
Meðal barnanna, sem gerðust
stofnfélagar voru þær Framnes-
systur, Guðlaug ogJónína. Gæslu-
menn fyrstu sex árin voru Einar
Einarsson koparsmiður og Jón
Jónsson trésmiður.
Árin 1916-17 lagðist stúkustarf
niður í Keflavík, en á skírdag 1919
var Nýársstjaman endurvakin. Þá
voru þær Guðlaug Guðjónsdóttir
(f. 1891, d. 1977) og Anna Guð-
jónsdóttir kosnar gæslumenn. Um
haustið 1919 lét Anna af störfum,
en Jónína, (f. 1895, d. 1982), systir
Guðlaugar, var kosin í hennar
stað. Önnuðust þær Framnessyst-
ur um stúkuna næstu 49 árin og
undir þeirra stjórn varð Nýárs-
stjarnan fjölmennasta barnastúka
landsins. Hafa fáir þegnar þessa
lands unnið barnastúkunum jafn
mikið starf og þær systur. Á nýárs-
dag 1972 afhenti þáverandi forseti
íslands, Kristján Eldjám, þeim
systrum riddarakross hinnar ís-
lensku fálkaorðu, fyrir störf þeirra
að æskulýðsmálum. Um það voru
menn almennt sammála, að sú
orðuveiting hefði verið fyllilega
verðskulduð, svo mjög sem orðu-
veitingar eru stundum umdeildar.
Fljótlega eftir að þær systur
tóku við stúkunni jókst félaga-
fjöldi hennar mjög. Þær systur
höfðu líka góð tækifæri til að ná til
mikils fjölda barna þar sem þær
stunduðu kennslu. 1923 voru fé-
lagar orðnir á annað hundrað. Um
1940 óx félagatala enn og þegar
systurnar létu af störfum gæslu-
manna 1968, voru félagar á sjötta
hundrað. Þegar félagafjöldi fór að
vaxa varð að skipta stúkunni í eldri
og yngri deildir, þar sem erfiðlega
gekk að fá hentugt húsnæði handa
svo miklum fjölda.
Auk hinna venjulegu funda-
halda hefur stúkan jafnan haldið
hátíðlegt afmæli sitt seinni hluta
vetrar ár hvert. Þar koma bömin
sjálf fram og flytja upplestur og
söng, leikþætti og skrautsýningar.
Einnig hefur hlutavelta lengst af
verið árlegur viðburður. Ferðalög
og grímuböll, diskótek og
skemmtifundir hafa tíðkast. Vinna
börnin mest að þessu sjálf undir
leiðsögn gæslumanna.
Þegar Framnessystur létu af
störfum 1968 tóku nýir gæslumenn
við. Fyrir eldri deild: sr. Björn
Jónsson og Hilmar Jónsson. En
yngri deild önnuðust þær Aðal-
björg Guðmundsdóttir og Óla
Björk Halldórsdóttir. Nú síðustu
árin hefur Hilmar Jónsson verið að
mestu einn með stúkuna, en Soffía
Karlsdóttir hefur aðstoðað hann.
Það er augljóst, að til að halda
jafnfjölmennri stúku starfandi og
Nýársstjörnunni, þarf að leggja
fram geysimikila vinnu. Alltaf þarf
A afmœli unglingareglunnar. - Gengið til kirkju.
Árshátíð 1979 - Soffía Karlsdóttir og Þorvarður Guðmundsson.
FAX1-223