Faxi - 01.12.1983, Blaðsíða 17
HELGI HOLM:
28. ÁRSÞING
Dagana 7. og 14. nóvember fór
fram 28. ársþing ÍBK. A þessu
þingi lét Garðar Oddgeirsson af
formennsku og Ragnar Marínós-
son tók við. í grein þessari er hug-
myndin að grípa niður í ársskýrslu
ÍBK og sérráða þess og geta ýmissa
þátta úr hinu fjölbreytta starfi.
Stjórn ÍBK 1982- 1983:
Formaður Garðar Oddgeirsson
Frá ÍK Skúli Skúlason
Nikulás Brynjólfsson
Frá KFK Hermann Sigurðsson
Ragnar Marinósson
Frá UMFK Gunnar Jónsson
Hörður Ragnarsson.
Haldnir voru 29 bókaðir fundir
og þar með eru stjórnarfundir ÍBK
orðnir 607.
Formaður handknattleiksráðs
var Magnús Bjarnason.
Formaður knattspymuráðs var
Magnús Daðason.
Formaður körfuknattleiksráðs
var Gunnar Valgeirsson.
Meðlimaf jöldi aðildarfélaga var:
Badmintonfélag Keflavíkur 130 félagar
íþróttafélag Kefalvíkur 240 félagar
Knattspyrnufélag Keflavíkur 970 fél.
U ngmennafélag Keflavíkur 980 félagar
íþróttahús Keflavíkur hefur
reynst mikil lyftistöng fyrir ÍBK.
Þar fer fram þróttmikið æfinga- og
keppnisstarf. ÍBK hafði forgöngu
um að koma upp þrekþjálfunar-
tækjum og auka þau enn á nota-
gildi hússins. Starfsstjóri, Jón Jó-
hannsson, og annað starfsfólk
hússins befur reynst íþróttafólki
ÍBK
og áhorfendum eins og best hefur
verið á kosið.
Pær íþróttagreinar sem helst em
stundaðar eru knattspyrna, körfu-
knattleikur, handbolti, judo,
borðtennis, badminton og blak.
íþróttafólk ÍBK náði margt góð-
um árangri á árinu. Kannski ber
hæst ágætur árangur í körfu. Þar
unnust íslandsmeistaratitlar í
nokkrum flokkum. Einnigeignuð-
ust júdómenn íslandsmeistara.
Fyrir utan þróttmikið iþrótta-
starf, þá vekur athygli góður ár-
angur ÍBK á fjármálasviðinu.
Þrátt fyrir, að það kosti gífurlegt fé
að reka alla þessa starfsemi, þá er
efnahagsstaðan jákvæð og mikil
festa og öryggi í fjármálum. Er
ekki að efa, að þar svífi andi for-
mannsins yfir vötnum. Samtals
voru rekstrartekjur ÍBK á árinu
rúmlega4.7 milljónir.
Þess er minnst í ársskýrslu ÍBK
að fyrsti formaður þess, Hafsteinn
Guðmundsson, hafi á árinu orðið
sextugur. Það er ósk þess sem
þetta ritar, að ÍBK megi ávallt
halda sér fersku og ungu í anda
sem Hafsteinn.
Iþróttahúsið hefur orðið mikil lyftistöng fyrir íþróttastarf í bæmim.
Stjórn ÍBK hefur haldið reglu-
lega fundi með sérráðunum og eru
slíkir fundir til gagns bæði fyrir sér-
ráðin og stjórnina.
Haustið 1982 hófust æfingar hjá
UMFK í blaki. Á undanfömum
árum hafa ,,01d boys“ stundað
blak en nú hófust í fyrsta sinn
reglulegar blakæfingar fyrir yngra
fólk.
í sumar var unnið að fullnaðar
frágangi frjálsíþróttasvæðis og á
allt að vera tilbúið fyrir Landsmót-
ið 1984. Hefur íþróttasvæðið smátt
og smátt verið að fá á sig betra
svipmót og nú hefur verið ákveðið
að byggja sundlaug á svæðinu. Er
gert ráð fyrir bæði inni- og útilaug.
Formaður ÍBK á sæti í íþrótta-
ráði og er Garðar varaformaður
þess. Fyrr á árinu lagði hann fyrir
ráðið svofellda tillögu: „Styrkur
Keflavíkurbæjar til ÍBK verði sem
hér segir: ÍBK fái frí afnot af öllum
íþróttamannvirkjum í Keflavík, til
æfinga og keppni. Beinn peninga-
styrkur falli niður.“
Ráðið mælti með tillögunni og
var hún síðan samþykkt í bæjar-
stjórn til reynslu í eitt ár. Telja
verður, að þetta fyrirkomulag hafi
gefist vel.
KEFLVÍKINGAR - SUÐURNESJAMENN
Höfum fengið til sölu 2ja og 3ja herb. íbúðir í þessu glæsilega sambýlishúsi
við Heiðarholt í Keflavík.
fbúðunum verður skilað tilbúnum undirtréverk, öll sameign fullfrágengin
og húsið málað að utan. Einnig verður gengið frá lóð og bílastæðum.
Beðið verður eftir Húsnæðismálastjórnarláni.
Upplýsingar um söluverð og greiðsluskilmála verða gefnar á skrifstofunni
að Hafnargötu 27, Keflavík.
Byggingarverktaki er Húsagerðin hf.
FASTEIGNASALAN
HAFNARGÖTU27
KEFLAVÍK
SÍMI1420
FAXI-217