Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1983, Page 27

Faxi - 01.12.1983, Page 27
ÓLAFUR B. ÓLAFSSON: Sjávarútvegur á tímamótum Fátt er meira rætt nú, þegar verðbólgan - að færðum miklum fómum - er að komast á viðráðanlegt stig, en ástand þorskstofnsins og hinar miklu efnahagslegu þrengingar, sem samdráttur afla hlýtur að hafa í för með sér fyrir sjávarútveginn og lífskjör þjóðarinnar í næstu framtíð. Hvernig stendur á því, að svona illa er komið fyrir sjávarútvegi okkar, sem raun ber vitni? Sjávarafurðaframleiðslan hefur þó tvöfaldast á undangengnum ára- tug, frá 1972 til 1981, og skapað okkur slíka velmegun, að fáar þjóðir standa okkur á sporði. Til að átta sig á þeirri tiltölulega flóknu stöðu, sem sjávarútvegur okkar býr við í dag, er nauðsynlegt að líta yfir þróun hans síðasta áratug. Á þessu tímabili má segja, að bylting verði í útgerðarháttum íslend- inga. Þar koma saman margir þættir: 1. Síldveiðar fyrir Norður- og Austurlandi falla niður undir lok sjöunda áratugarins og skapa mikla röskun í atvinnutekjum þess- ara svæða og í efnahagslífi landsmanna. 2. Stjómmálamenn ýta undir þá uppbyggingu, sem þá virtist liggja beinust við, þ.e. að efla útgerð og fiskvinnslu á þessum svæðum. Þetta gerðist þrátt fyrir, að þá þegar væri vitað og talað um takmarkaða afkastagetu fiskstofna okkar og að í framtíðarat- vinnuuppbyggingu yrðum við að halda inn á nýjar brautir. 3. Stækkun fiskveiðilögsögunnar og árangur okkar í fiskveiðideilun- um gaf okkur nýjar forsendur fyrir stækkun togaraflotans. Hin góðu áhrif, sem tiltölulega tryggur og stöðugur togaraafli hafði á rekstrareiningarnar í landi, örfaði um of til að halda áfram á þessari braut, svo að við sitjum í dag uppi með allt of stóran togaraflota. 4. Þáttur opinberra fulltrúa og sveitarstjóma í einstökum fjárfest- ingarákvörðunum og eignaraðild verður mun stærri en áður hafði tíðkast. Útgerðin var áður að yfirgnæfandi hluta á ábyrgð ein- staklinga. 5. Atvinnufölunarsjónarmið einstakra svæða vega á þessu tímabili meira en aðrsemissjónar- mið. Heildarhagsmunir út- gerðarinnar virðast vera látnir liggja á milli hluta við töku fjárfestingarákvarð- ana. Suðurnesjamenn hafa margoft varað við afleiðingum þess, að sækja um of í fisk á uppvaxtar- svæðum hans. En enginn ráða- maður hefur tekið mark á þeim og sjálfsagt hafa þeir verið taldir öfundsjúkir og andvígir byggða- stefnu. Suðurnesjamenn hafa horft á uppbyggingu og nýbygg- ingu frystihúsa úti um land á sama tíma og lokun frystihúsa fyrir fullt og allt er árlegar viðburður á þeirra heimaslóð. Og hin síðari ár er sala togara af Suðumesjum álíka algengur við- burður og togarakaup til svæðisins. Svipaða sögu má segja af endumýj- un bátaflotans. Þessar vikumar snýst hugur allra, sem tengjast sjávarútvegi, um stjórnun veiðanna á næsta ári. Er þá einkum leitað leiða, sem milda afleiðingar aflasamdráttarins það árið. En verðum við ekki að hugsa til lengri tíma? Verða stjórnmálamenn ekki fyrst og fremst að reyna að læra af mistökum fyrri ára? Verður ekki stefnan sú, að þróa sjávarútveginn í það horf, að há- marksafraksturgeta fiskstofnanna sé tryggð, samfara hámarksarðsemi sjávarútvegsins. Slíkt gerist ekki í einni svipan, en því ríkari ástæða er tii að marka rétta stefnu sem fyrst. Okkur verður að takast að koma sjávarútvegi okkar út úr þeim heimatilbúnu þrengingum, sem hann nú býr við, svo hann geti áfram verið ein af meginstoðum velmegunar í landi okkar. Lótus Lótus er fáanlegt alhvítt, einnig með platínurönd. Hafirþú hug á að eignast Lotus a jólaborðið, þá er ráðlegast aó gera pöntun fljótlega. Innnömmun SuDunnesjR VATNSNESVEG112 KEFLAVÍK SÍMI3598 FAXI-227

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.