Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1983, Page 54

Faxi - 01.12.1983, Page 54
ÞEGAR STERUNG BJARGAÐI i STERLING -strundferðaskip hérfrá 1907. Skipid ersmíðað í Leith 1891. 1040 hr. lestir, 70 m langt, með200 ha. vélog 12 hnúta hraða, eitl glœsilegasta skip í íslandsferðum ú þessum tíma, með rúm fyrir 40 farþega. Gerl út af Thor-félaginu. (Þórarinn Túlinius). í>að mun hafa verið rétt fyrir kl. 10 að morgni hinn 19. desember 1919, að ég var á leið í skólann, að sjálfsögðu í Gamla-skólann við Skólaveginn. Það var útsynnings- rok með slydduél jum. Ég hljóp við fót upp Suðurgötuna, sem þá var aðeins moldarvegur, er náði frá Tjarnargötu að Skólavegi. Við Suðurgötuna voru þá þessi hús að norðanverðu við götuna. Næst Tjarnargötunni var Báruhús- ið, sem nú er Suðurgata 1, þá var lítið timburhús, klætt svörtum pappa, næst voru Veghús, þarsem þau eru enn, þó að vísu mikið breytt og syðst var húsið Sunnu- hvoll, timburhús með flötu þaki, klætt utan liggjandi timburklæðn- ingu. Hús þetta byggði Ágúst Jónsson hreppstjóri, sem nú var skólastjóri barnaskólans. Þegar ég kom upp í skólann, var þar heldur ömurleg aðkoma. í skólastofunni var allt gólfið útatað af sótlituðu vatni, sem runnið hafði niður um reykháfinn. Reyk- Eyvindur M. Bergmann. háfurinn hafði brotnað uppi á þak- inu í óveðrinu um nóttina og vatn- ið þá fengið óhefta rás niður í skólastofumar. Hér var þannig umhorfs, að sýnilegt var að eigi væri hægt að kenna þennan dag, við þessar að- stæður. Var okkur börnunum því sagt að fara heim við svo búið. Þennan vetur og veturinn á und- an, var aðeins kennt í annarri skólastofunni. Voru deildimar tvær, efri og neðri deild, og var hvorri deild kennt annan hvem dag. Þetta var á stríðsámnum, kolin dýr og af skomum skammti. Þennan vetur var Ágúst Jónsson skólastjóri og Guðlaug í. Guð- jónsdóttir kennari og var þetta fyrsti kennsluvetur hennar í Kefla- vík. Áður hafði hún kennt í Leir- unni. Á leiðinni heim var ég að hugsa, FRÁ ALMANNATRYGGINGUM í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu Vegna tölvuvinnslu skal bótaþegum bent á aó tilkynna umboðinu strax um breytingu á heimilisfangi. Tilað komast hjá erfiðleikum í útsendingu bótamióa. Sími okkar er 3290. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu hvort þetta veður væri af völdum halastjömunnar. - En því hafði verið spáð, að halastjarna væri í nánd, sem ef til vill mundi rekast á jörðina, og var mikið um þetta rætt, og því margir uggandi, hvað gerast mundi næstu daga. Ég átti heima á Vesturgötu 5 (nú nr. 9), en hús pabba og mömmu var við Vallargötu 30 og var þá gangstígur á milli þessara húsa. Þegar ég leit inn til mömmu brá mér, er ég sá hve hnuggin hún var, og hún sagði mér, að pabbi væri á sjó í þessu vonda veðri. Hefði hann róið um nóttina, snemma, með Eyvindi Bergmann og væm þeir ekki komnir að landi. Með þeim hefðu einnig róið þeir Hjör- Hjörleifur Einarsson. leifur Einarsson og Eyjólfur Guð- jónsson. Ég dvaldi heima hjá mömmu nokkra stund, en fór síðan heim til ömmu, á Vesturgötuna, en þar átti ég heima frá 7 ára aldri. Síðar þennan sama dag, meðan útsynningurinn hamaðist, sigldi gufuskipið Sterling inn á höfnina í Keflavík og gaf til kynna með eim- pípunni að þeir vildu hafa sam- band við land. Var nú mannaður bátur í Stokkavörinni og róið út að skip- 254-FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.