Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1983, Qupperneq 62

Faxi - 01.12.1983, Qupperneq 62
HJÓNAMINNING Sigurður Krístjónsson Guðjónína Sæmundsdóttir Sigurður Kristjánsson, einn af elstu íbúum Suðurnesja lést hinn 5. ágúst s.l. í Sjúkrahúsi Keflavík- urlæknishéraðs, eftir stutta legu. Fór útför hans fram frá Útskála- kirkju f3. s.m. Sigurður var fæddur að Brimn- esi við Seyðisfjörð 31. desember 1886 og var því hátt á 97. aldursári er hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Eyjólfur Asmundsson og Agnes Kjartansdóttir. Á fyrsta ári fluttist Sigurður með foreldrum sínum í Meðalland í Austur-Skaftafellssýslu. Þar ólst hann upp og átti heima þar til hann fluttist til Reykjavíkur. Var hann þar næstu árin með móður sinni, sem þá var löngu orðin ekkja. Árið 1912 kvæntist Sigurður frændkonu sinni, Guðjónínu Sæ- mundsdóttur. Foreldrar hennar voru hjónin Sæmundur Einarsson og Guðrún Kjartansdóttir. Þær Guðrún og Agnes voru systur og bjuggu foreldrar þeirra, Hildur Sveinsdóttir frá Vindáshlíð í Kjós og Kjartan Herjólfsson í Miðgarði á Vatnsleysuströnd. Er sá bær nú alveg horfinn undir sjó. Fyrir nokkrum árum sá á suðausturstafn bæjarins, en nú sjást þar engin merki um byggð lengur. Þannig vinnur tímans tönn á landinu okk- ar. - Vesturströndin er alltaf að lækka og síga undir sjó. Guðjónína fluttist ung að Vatnsnesi við Keflavík og ólst þar upp hjá hjónunum Helgu Vigfús- dóttur og Guðna Jónssyn, bónda þar. Var hún þar til tvítugsaldurs, að hún giftist Sigurði. Þau bjuggu í Reykjavík til 1930, en þá keyptu þau jörðina Ásgarð á Garðskaga. Þar bjuggu þau til 1959, er þau hættu búskap. Árið eftir dvöldu þau hjónin hjá dóttur sinni, Agnesi og manni hennar, Torfa Sigurðssyni á Mánaskál í Laxárdal í Austur- Húnavatnssýslu. Guðjónína var þá farin að heilsu. Fór hún þá suð- ur að leita sér lækninga, en sú leit bar ei árangur. Hún lést í Sjúkra- húsi Keflavíkurlæknishéraðs 18. júlí 1960. Eftir það var Sigurður til heimil- is hjá Helgu dóttur sinni og manni hennar, Guðmundi Ingimundar- syni, til ársins 1968, en þá flutti hann til Ólafs sonar síns og konu hans, Ólafíu Helgadóttur og átti hann þar heimili, þar til hann í febrúar 1982, flutti í Garðvang, dvalarheimili aldraðra í Garði. Meðan kraftar leyfðu fór Sig- urður á hverju sumri, eftir að hann hætti búskap, til hjónanna á Mánaskál, Agnesar dóttur sinnar og Torfa manns hennar og tók þátt í heyskapnum og öðrum sumar- störfum. Munaði þar vel um gamla manninn, því Sigurður var afburða sláttumaður, meðan hann var og hét. Sigurður átti tvö alsystkini: Sveinbjörn, hann drukknaði í sjó- róðri, í aftakaveðri við Vest- mannaeyjar, rúmlega tvítugur að aldri, og Björnínu, sem bjó í Reykjavík. Hún lést árið 1979. Einn hálfbróður átti Sigurður, Brynjólf Björnsson, tannlækni í Reykjavík, sem látinn er fyrir mörgum árum. Guðjónína átti þessi systkini: Lárus, hann fluttist til Vestur- heims, Sveinbjörgu, Ólaf og Þor- stein, sem búsett voru í Reykjavík. Hálfbróðir hennar var Lýður Magnússon, sem bjó íHafnarfirði. Þau eru öll látin. Þau hjónin, Sigurður og Guð- jónína eignuðust 9 böm. Tveir drengir dóu ársgamlir. Þeir hétu Sveinbjörn og Björgvin. - Þau 7, er lifa eru þessi í aldursröð. Sveinbjöm Óskar, ókvæntur, býr í Reykjavík. Agnes, gift Torfa Sigurðssyni, búa á Mánaskál, A-Húnavatns- sýslu. Björg Kristín, gift Ragnari Guð- leifssyni, búa í Keflavík. Ólafur Gunnar, kvæntur Ólafíu Helgadóttur, búa í Garði. Ágústa Þórunn, gift Guðna Ingimundarsyni, búa í Garði. Kristján Guðmundur, kvæntur Helgu Guðmundsdóttur, búa á Höskuldsstöðum, A-Húnavatns- sýslu. Helga, gift Guðmundi Ingi- mundarsyni, búa í Garði. Afkomendur Sigurðar og Guð- jónínu eru nú orðnir 68. Eftir að Sigurður fluttist til Reykjavíkur, var hann til sjós, fyrst á skútum og síðar á togurum, eftir að þeir komu til sögunnar. Þá vann hann og að sjálfsögðu það, sem til féll í landi. Hann hafði á fyrstu árum sínum í Reykjavík lært skósmíði og vann r Hvað Hugfast jafnan hafa skaltu, ungur hvað sem fremur, nemurf gamall ungi vinur, allt hvað nemur, illt og gott, það gamall temur. temur Aldni vinur eins máttu‘líka, og öllu fremur, að því gæta, að allt hvað temur, illt og gott, það ungur nemur. R. / 262-FAXI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.