Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1983, Síða 72

Faxi - 01.12.1983, Síða 72
... ámað heilla ... ámaðheilla... ámað heilla ... ámað hellla.. Bjöm Magnússon sjötugur Kœri samherji Björn Magnússon. Við hjónin óskum þér afalhug til hamingju með sjötíu ára afmrelið. Vonandi munu minningarnar frá afmœlishófi þínu þann 15. októher s.l. endast þér alla tíð. Megir þú ftnna gleði og styrk í því að muna vinahópinn, sem sótti þig heim. Megir þú ftnna öryggi og ánœgju þess að lifa meðal vina, þó þeir séu ekki alltafí sjónmáli. Við óskum þér þess að vinirnir birtist þér þá og þegar þú þarft þess með. Björn, þú hefur alltaf verið hug- sjóna-, framkvœmda- og gœfu- maður. Á lífsferli þínum hefur þú gengið í gegnum mikla og marg- breytilega lífsreynslu. Pín gæfa hef- ur m.a. verið fólgin í því að kunna SETBERG óskar Suöurnesja- mönnum gleðilegra jóla og farsældará komandi ári. SETBERG Freyjugötu 14, Reykjavík. að taka mótlœtinu og gera gott úr hlutunum. Sömuleiðis hefur þú kunnað að taka meðlœti og góðum dögum og það er mikil lífsins kúnst. Öll þau ár, sem ég hef þekkt þig og þurft að rœða við þig, oft um viðkvæm mál, hefur þú haft hjart- að á réttum stað, efsvo má að orði komast. Þú skilur oft svo vel innri kjarnann í hverju máli, en horfir ekki á hismið stjörfum augum eða aukaatriði málsins. Það er líka guðsgjöf að geta það. Ég er ekki að halda því fram að allt sem þú hefur gert sé rétt, eða það eina rétta. Hvaða maður getur hagað breytni sinni þannig? En hinn góði vilji þinn ræður oftast gjörðum þínum og tillögur þínar eru alla jafna gjörhugsaðar og góð- ar og mjög umhugsunarverðar. Þú átt hrós skilið, því þú ert hróss verður. Þú ert vinfastur. Það er einn þinna kosta. Þú ert iðnaðar- maðurí besta lagi, sem erheiðurog sœmd. Fáir eru meiri listamenn en einmitt góðir smiðir, því að verkið lofar meistarann. Davíð Stefánsson, hið mikla skáld, segir í Ijóði sínu ,,Höfðingi smiðjunnar“. Hann vinnur myrkranna milli. Hann mótar glóandi stál. Þaö lýtur hans vilja og valdi, hans voldugu, þöglu sál. Sú hönd vinnur heilagan starfa, sú hugsun er máttug og sterk, sem meitlar og mótar í stálið sinn manndóm - sín kraftaverk. Þarna er mikið sagt og meistara- lega, - af skáldsýn - um hinn skap- andi mann. Björn, þú hefur verið skapandi maður alla þína tíð og stendur vel fyrir þínu: Hann tignar þau lög, sem lífið með logandi eldi reit. Hann lærði af styrkleika stálsins að standa við öll sín heit. Hann lærði verk sín að vanda og verða engum til meins. Þá væri þjóðinni borgið, ef þúsundir gerðu eins. Þetta sagði Davíð um manninn, sem mótaði stálið. Björn, þú hefur mótað stálið, frá bernsku til þessa dags og gerir enn. Þú býrð yfirstál- vilja og styrkleika og hefur aldrei hlaupist frá hálfnuðu verki. Þú ert líkur fyrirmynd skáldsins, - já sannur höfðingi jafnt í smiðj- unni sem utan hennar. Ég óska þér þess, að þú njótir œvikvöldins langan tíma í sannri gleði þroskaðs manns og bið þér guðs blessunar í nútíð og framtíð. Oskar Jónsson. Karvel Ögmundsson áttræður Hér erum við mættir til að fœra þér heillaóskir Olíufélagsins á þess- um tímamótum. Þú varst með þeg- ar grunnur var lagður og félag okk- ar stofnað. Þú hefir verið í stjórn þess allt frá stofnun félagsins. Þú heftr verið traustur útvörður og ráðgjafi þegar vandasöm atriði hafa verið rœdd og stefna mörkuð. Þú hefir með hógvœrð og stillingu gert athugasemdir, bent á leiðir til lausnar, þegar vanda hefir borið að höndum. Tillögur þínar og ábend- ingar hafa jafnan verið mótaðar af lífsreynslu þinni, eðlisgreind, vel- vilja og jákvœðu lífsviðhorfi. Fyrir þetta og störf þín öll í þágu Olíufélagsins er þér þakkað. Karvel Ógmundsson er á vissan hátt í hópi landnámsmanna og skipar þann sess með prýði. Land- nám hans er víðáttumikið. Suður- nes öll hafa verið í hans verka- hring. Þar hefur hann verið í farar- broddi um margra áratuga skeið. Hann hefir átt drjúgan hlut í fram- farasókn og uppbyggingarstarfi á fjölmörgum sviðum byggðariags- ins. Þess er minnst og það er þakk- að í dag. Karvel er ekki aðeins landnáms- maður. Hann er einnig aldamóta- maður í þess orðs bestu merkingu. Allt hans starf og líf hefir verið mót- að afósk um betri tíð landi og þjóð til handa. Hann hefir lýst bernsku sinni, umhverfi og lífsbaráttu sam- tíðar sinnar á glöggan og eftir- minnilegan hátt í ritverki, sem er einstakt í sinni röð. Það varðveitir hluta af þjóðarsögu okkar og minnir á, hvernig barist var í raun með tvær hendur tómar gegn regin- mætti máttarvaldanna. Ég lœt hér staðar tiumið. Við vit- um að margir hugsa til Karvels í dag og þakka giftudrjúgt liðsinni og framlag á víðum vettvangi. í þeim hópi erum við, félagar þínir og samstarfsmenn í Olíufélaginu. Hjörtur Hjartar. Ingólfur AÖalsteinsson sextugur Ingólfur Aðalsteinsson fram- kvœmdastjóri Hitaveitu Suður- nesja varð sextugur 10. október síðastliðinn. Það er mérsem formanni Lions- klúbbs Njarðvíkur ánœgjuefni að fá að flytja honum og fjölskyld- unni, árnaðaróskirfyrir hönd okk- ar félaganna úr klúbbnum. Ingólf- ur gerðist félagi í Lionsklúbbi Njarðvíkur á afmœlisdegi sínum 10. október 1962 og hefur því verið Lionsmaður í 21 ár og hefur Ing- ólfur verið rnjög virkur í hreyfing- unni og starfað í sönnutn Lions- anda alla tíð. Mér er það bæði Ijúft og skylt að minnast á lítið eitt af hinum fjöl- mörgtt störfum sen Ingólfttr hefttr innt af hendi fyrir Lionsklúbb Njarðvíkur gegnttm árin. Hann var í stjórn, sem gjaldkeri starfsárið 1965 - 1966. Umdœmisritari 1968 - 1969 og formaður 1973 - 1974, núna á þessu ári í mætingar og fjár- öflunarnefnd. Ég vil nota þetta tœkifæri og þakka Ingólfi öll hans fjölmörgu störf fyrir Lionshreyfinguna og hlakka til að eiga með honum sam- leið áfram um ókomna tíð. Að lokttm kœri félagi, endurtek ég árnaðaróskir þér til handa á þessum merku tímamótum. Lifðtt heill. Með Lionskveðju, Form. L.K. Njarðvíkur, Eðvald Bóasson. 272-FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.