Straumar - 01.04.1930, Page 12

Straumar - 01.04.1930, Page 12
6 STRAUMAK arhugsjónir hinnar eldri, fjölskyldu-hjónabönd hennar, refsilöggjöf hennar, eignarrétt hennar, trúarbrögð henn- ar, í því formi og með þeim anda, sem það er boðað og varðveitt af yfirstéttum þjóðanna, af því ekkert af þessu virðist hafa megnað að gjöra villimennsku vestrænnar menningar sýnu betri en frumþjóðanna. En liún gjörir sér mikið far um að nema lögmál þau, er félagslíf þjóð- anna lýtur og trúir því, að leggja megi vísindalegan grundvöll undir samlíf mannanna og viðskifti. Hún hæð- ist að þeim vísindum, sem uppgötva hvern „sannleikann“ á fætur öðrum, án þess að megna að ráða bót á nokkru af böli mannkynsins og auka snefil á öryggi þess og ham- ingju. Mikill meiri hluti af vísindalegum sannleika nú- tímans er arðnýttur á tvo vegu. Hinn hagnýta hluta hans kaupa auðfyrirtæki, til þess að græða á, hinn óhagnýta hluta taka menntastofnanir ríkjanna og okra með, veita efnuðum unglingum þekkingu á þeim til þess að þeir síð- ar geti veitt sér þægilega aðstöðu í lífinu. Eitthvað á þessa leið hugsar hin nýja æska Evrópu. Og hún hefur gegndarlausa fyrirlitningu á vinnubrögð- um og lífsháttum hinnar eldri kynslóðar, öllu þessu basli við að ná ófullkomnum árangri, með ófullkomnum tækj- um og ófullkominni þekkingu. Og hún hefir andstygð á því hugarfari, sem sættir sig við skort, óþrifnað, fáfræði og blint og meiningarlaust strit. Að vinna fyrir daglegum þörfum sínum, er að hennar skoðun ekki meira þrek- virki, en það, að því má afkasta á örfáum stundum á dag, þar sem vinnutækin eru í lagi og skipulag á meðferð framleiðslunnar. Ekkert ber vott um eins óþverralega fyrirlitningu fyrir mannréttindum og manngildi, eins og að láta fólk strita með ófullkomnum vinnutækjum í óhollu og ófögru umhverfi. Eldhús almennings og búðarholur og jafnvel skólar, eru samsvarandi vanvirða hinni tuttugustu öld, eins og meðferð sveitarómaga var hinni nítjándu. Það sem æska nútímans þráir, er skynsamleg vinnu- brögð, fögur og einföld og holl húsakynni, frjálsræði til fróðleiksiðkana, hvíldar, og glaðværðar, fegurð í klæða- búnaði, húsbúnaði og háttum. Og það er alvara hennar.

x

Straumar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.