Straumar - 01.04.1930, Side 41

Straumar - 01.04.1930, Side 41
S T R A U M A K 35 honum blinda hlýðni við alla yfirboðara sína, bæði and- lega og veraldlega. Leit þvi Sovjetstjórnin kirkjuna engu ástúðarauga og taldi hana hið versta fótakefli þeirrar við- leitni sinnar, að ala ungu kynslóðina upp i frjálsum mennt- um, en kirkjan sá sér hinsvegar voða búinn af allri upp- lýsingu og greip því til allra vopna, til að hamla á móti „guðleysinu11. Gerðist brátt heitt á milli kirkju og ríkis, og vildu hinir bráðustu sameignar-menn láta afnema kirkj- una að fullu þegar í stað. Var þá mörgum kirkjum lok- að fyrir ýmiskonar svik og pretti, sem þeim var borið á brýn, en aðrar gerðar að kvikmyndahúsum eða teknar til annara óvirðulegri afnota, og víða voru festar upp yfir- lýsingar um það að trúin væri aðeins deyfilyf (opium) fyrir fólkið. Sá þá rétttrúaða kirkjan eigi annað ráð vænna, en að láta undan síga og kyssa á vöndinn og hefir siðan verið friður að kalla á yfirborðinu milli forkólfa hennar og stjórnarinnar, með því að prestum hefir verið strang- lega fyrirskipað að láta sig stjórnmál engu skipta. En undirniðri hefir óspart verið unnið að því, að grafa grund- völlinn undan kirkjunni, bæði með því, að rita gegn henni í blöðum og tímaritum og einkum með því að innræta börnum í skólunum, að öll trú og guðsdýrkun sé ekki annað en skrípaleikur og hégilja, fundin upp af svikulli og ómerkilegri prestastétt. Hafa því unglingarnir hópum saman snúið baki við kirkjunni og gert gabb að henni og þar með trú eldra fólksins. Er talið að kirkjusókn, sem var mjög góð áður, hafi þverrað um heltning að minnsta kosti. og auk þess hafa dregizt úr höndum kirkjunnar mikið af skirnum og giftingum, jafnvel fara greftranir iðulega fram þannig, að enginn andlegrar stéttar maður kemur þar nálægt. Afleiðingin af þessu hefir orðtð sú, að margar kirkjur standa næstum auðar og fjöldi presta hef- ir hreint og beint farið á vergang, en aðrir gerzt smiðir eða framreiðslumenn og soðkarlar í veitingahúsum, eða hvað annað, sem þeim hefir boðizt að gera. Theodor Dreiser segir í bók, sem hann hetír nýlega skrifað um Rússland (Dreiser Looks at Russia, New York 19‘2S), að það hatí verið algengt hvar sem hann fór um Rússland, 3*

x

Straumar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.