Straumar - 01.04.1930, Blaðsíða 61
S T R A IT M A R
55
saman upp úr. Líklegast er þó, að höf. annars ritsins hafi
heitið Jóhannes og verið mikilsmetinn í söfnuðum Litlu
Asíu, en einhver annar hafi gengið frá ritinu og gefið
það út.
Opinberunarbókinni gekk lengi allilla að öðlast fast
sæti í N. T. Var mikið um það tíeilt á 2. og 3. öld, hvort
hún ætti að fá að vera með eða ekki, en Jóhannesar-
nafnið mun hafa bjargað henni. En annars má segja, að
hún hafi átt þangað lítið erindi, og margir góðir kristnir
menn hafa amazt við henni. Hmsvegar hefir hún verið,
og er enn hreinasta gullnáma fyrir ýmsa sérkredduflokka,
einkum þá, sem hafa „slegið sér upp“ á predikunum um
bráðan heimsendi. Má þar tii nefna þá, sem okkur eru
kunnastir, Adventistana. Beita þeir Op. sömu svikabrögð-
um og Daníelsbók, ýmiskonar fáránlegum útreikningum,
og finna út eftir henni, að þeir, Adventistamir sjálfir.
séu þeir einu, sem „hvítþvegið hafa skikkjur sínar í blóði
lambsins", og eigi sér von um inngöngu í hina nýju Jerú-
salem.
Sem eitt dæmi upp á vísindamensku þeirra er skýr-
ing þeirra á „dýrinu“ í kap. 13. Er sagt, að tala dýrsins
sé 666. Adventistar segja, að tala þessi sanni, að dýrið
sé páfinn, því að taian sé falin í titli páfa: Vicarius filii
Dei (umboðsmaður guðs sonar). Ef teknir eru þeir bók-
stafir í þessum orðum, sem tölugildi hafa í rómverskum
tölum og lagðir saman kemur út 666! svo alt passar. —
En rétta skýringin er þessi:
Ofsóknir Nerós seint á sjóunda tugnum á hendur
kristnum mönnum urðu þeim mjög minnisstæðar, og þeg-
ar Neró dó, trúðu menn því ekki, að hann væri dauður
Myndaðist sú saga, að hann hefðist við í Asíu og myndi
koma aftur hálfu verri og ráðast gegn hinum heilögu.
Neró er dýrið í Op. og fyllilega gefið þar í skyn, að Domi-
tian keisari, sem hefur ofsóknir á hendur kristnum mönn-
um vegna þess, að þeir neita að dýrka keisarann, sé Neró
afturkominn. En nú er „tala“ Nerós á hebresku 666, því
að ef teknar eru þær tölur, sem tölugildi hafa í hebresku
orðunum Nerwn Kesar (Neró keisari) lagðar saman koma