Straumar - 01.04.1930, Side 62
56
S T R A U M A Ii
út 666 (N = 50, r = 200, w = 6, n = 50, K = 100, s = 60,
r = 200, alls 666).
Álíka ábyg’gilegar eru önnur söguvísindi Adventista.
Eg hefi gerzt svo fjölorðuv um Opinberunarbókina,
af því að hún hefir á síðari árum verið notuð af þessum
sérkredduflokki til að sanna heimsslitakenningar þeirra,
sem þeir skrifa um langar bækur, gefa út í 4000—5000
eintökum, og selja hér um allai sveitir landsins, meðan
góðar bækur og nytsamar seljasc alls ekki. Að vísu kaupa
menn varla bækur þessar vegna þess að þeir vilj i eiga þær,
heldur eni sölumenn Adventista ákaflega þrautseigir, og
fara helzt ekki út úr húsum manna fyr en þeim hefir ver-
ið gerð einhver úrlausn. Nota þeir venjulega þá lúalegu
aðferð, a. m. k. hér í Reykjavík, að korna á þeim tíma
dags, þegar húsbóndinn er ekki heima og húsmóðirin er
önnum kafin í húsverkum, biðja frúna mjög kurteislega
að tala við sig nokkur orð í einrúmi. Hún verður bæði
hálf hrædd og forvitin og veit ekki hvaðan á sig stendur
veðrið, en býður þó mannskepnunni inn. Hann tekur upp
bækur sínar, talar og talar, konan stendur á nálum um að
börnin séu að fara sér að voða, grauturinn brenni við, en
hefir ekki nægilegt hugrekki +il að seg'ja manninum að
snauta út, eða hringja á lögregluna. Ekki þýðir að neita
að kaupa bækurnar, því að þá dregur hann upp nýjar
bækur, og endirinn er svo venjulega sá, að konuauming-
inn lætur undan eftir hálftima stapp og skrifar nafn sitt
fyrir einhverri bókinni, til þess að kaupa sig undan þess-
um slepjuga ófögnuði. Hefir verið bent á framferði þess-
ara sníkjudýra áður í Straumum, og er vonandi, að rnenn
taki hugrekki í sig og reki þau út næst, þegar þau berja
að dyrum hjá þeim.
I undanförnum köflum hefir í stuttu máli verið skýrt
frá uppruna biblíunnar og einstakra rita hennar, og vona
eg, að þó að eg hafi orðið að fara ákaflega fljótt yfir sögu.
hafi ýmislegt í því sambandi skýrzt fyrir mönnum. Eg
vona að mönnum hafi skilizt, að biblían er merkilegt rit-
safn, þar sem sjá má andlega þi’oskasögu heillar þjóðai