Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 20
14
8TRAUMAE
eru fólg-in í því, að illa uppalinn, og óuppalinn og skóla-
skemdur og borgaralega hugsandi tildur-lýður, er að launa
fóstrið á >ann eina hátt, sem honum er fært að launa, og
eins og til er stofnað, — með því að verða ómenni. Eg
veit að vísu að til eru margar undantekningar frá þessu,
og eg veit hitt einnig, að fjöldi barna á við þann hag að
búa um húsnæði, matarhæfi, fatnað og alla aðbúð, að það
stefnir að því að gjöra þau að aumingjum. Heimilin
megna ekki að veita þeim heilsusamlega aðbúð, né skyn-
samlega meðferð, skólarnir ná aldrei tökum á þeim með
kyrsetum sínum og fræðagutli. Þau alast upp á götunni.
utan við lög og rétt og umhyggju, ófriðhelg og réttdræp
bílum og vögnum, ofurlitlir hnupplandi, hrekkjandi,
skemmandi, skrökvandi uppreistarmenn. Eg held að upp-
reisn íslenzkrar æsku sé aðallega fólgin í þessu tvennu.
Og ef hún er það ekki, þá er hún af anda og toga öreiga-
æskunnar. Og mér er sem eg sjái hver huggun sumum
mönnum er í því.
En hinsvegar munu flestir játa að fremur óviðfeldið
sé, að láta stóran hluta æskumanna verða að óknytta-
seggjum, ómennum og aumingjum, án þess að hafast eitt-
hvað að. Eina úrlausnin er sú, að veita börnunum tíma-
bært uppeldi. En á því er sá hængur að tímabært uppeldi,
sem er í því fólgið að sjá á viðunandi hátt fyrir andleg-
um og líkamlegum þörfum barnsins og leggja með því
grundvöll vísindalegrar félagshyggju og lífsstefnu, auk
sjálfsagðrar tamningar starfshæfileika hvers einstakl-
ings, mun alstaðar hníga að því að gefa uppreisn æskunn-
ar markmið og innihald, hefja hana upp úr því að vera
ný útgáfa af siðleysi og vanköntum hinnar eldri kynslóð-
ar. Hún verður öreigaæska í trássi við ætt sína og efna-
hag, í trássi við trúarbrögð og venjur, í trássi við allt.
Hjá því verður ekki komizt. Urn þetta tvennt á íslenzka
þjóðin að velja eins og allar aðrar þjóðir. Og það ei' í
rauninni ekki um nema eitt að velja. Vér verðum að taka
upp síðari kostinn. Og vilji þjóðin ekki sjálf, þá verður
valið tekið af henm. Atburðarásin sjálf mun taka af
skaríð.