Straumar - 01.04.1930, Page 30

Straumar - 01.04.1930, Page 30
24 S T R A U M A R ráðning þeirra í baráttunni fyrir nýju og betra samfélagi mannanna. Tilgangur og imiihald lífsins er guðssamfélagið fyrir hinn trúaða, en fyrir öreigann er það jafnaðarstefnan, hið nýja samfélag, hið fullkomna bræðralag á jörðinni. „Fagnaðarerindi Krists veitir mér ekkert, jafnaðarstefn- an veitir mér alt“, er játning eins. Dr. P. segir, að kenningar socialista (og kommun- ista) um þjóðfélagið, samsvari að vissu leyti guð.fræði hinna trúuðu. Eins og guðfræðin leitast við að móta hina trúarlegu reynslu manna í kenningar og gefa fræði- legai' skýringar á þeirri lífsskoðun og lífsskilningi, sem trúin veitir þeim, eins leitast fræðimenn jafnaðarmanna við að kerfisbinda og skýra lífsskoðun jafnaðarstefnunn- ar og hina djúpu andlegu reynslu, sem hún vekur hjá áhangendum sínum. Þessi reynsla er í rauninni trúarlegs eðlis hjá mörgum, einkum hinum ómentaðri öreigun, sem skilja ekki í raun og veru rök socialismans, en eru höndlaðir af lífsskoðun hans, ef svo má segja, og þó að þessi „trú“ eigi sér enga guðsmynd, er hún jafn ákveðin og bindandi, fyrir þann, sem hefir gripizt af henni. eins og nokkur guðstrú. Og þessi trú jafnaðarstefnunnar er svo ákveðin og fullnægjandi hinum andlegu þörfum öreigalýðsins með hinni takmörkuðu útsýn hans yfir lífið, að kristindómur- inn kemst þar hvergi að. Þeim er ekki þörf á honum. Þá er enn eitt, sem sýnir að jafnaðarstcfnan er trú. Það er sameiginlegt einkenni allra þeirra, sem heit- trúaðir eru, að þeir bíta sig fasta í þær skýringar trúar- innar, sem þeim hafa verið innrættar og þeir kalla barna- trú, en eiga ekkert umburðarlyndi með þeim, sem að vísu játa sömu trú á grundvallaratriðum, en hafa aðra guð- fræði, aðrar skýringar á trú sinni. Og hatrið virðist oft vera því meir, sem minna ber á milli. Þetta er svo alkunn- ugt fyrirbrigði í trúarbragðasögunni, að óþarft er að nefna dæmi. Sama hefir átt sér stað með jafnaðarmenn. Víðast hvar annarsstaðar en hér á íslandi er hatur og fjandskapur milli kommunista og socialista, hatur sem

x

Straumar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.