Straumar - 01.04.1930, Blaðsíða 34

Straumar - 01.04.1930, Blaðsíða 34
en venjuleg'a að eins með þeim orðum að hvetja menn til sátta og samlyndis, og biðja guð um frið í atvinnulífinu. Slíkar hvatningar hafa reyndar engin áhrif, þeim er al- drei sint. En sjaldan held eg að það bwi við, að prestar lýsi af stól fylgi sínu við annan aðila, eða geri ákveðnar tillögur til sátta. Yfirleitt held eg, að segja megi, að ræð- ur presta hér á landi, séu oftast óákveönar, litlausar og fjarlægar þeim vandamálum, sem þjá þjóðfélagið, og liggja þyngst á hjörtum manna. Þó að þannig megi segja, að í embætti sínu gæti prestar hlutleysis við jafnaðarmenn og baráttu þeirra fyrir nýju og betra þjóðfélagi, ber þó ekki að leyna því, að þeir hafa allflestir ákveðnar skoðanir á stjórnmálum, og láta þær í Ijós á vettvangi stjórnmálalífsins líkt og aðrir menn. Meir en helmingur þeirra munu vera íhaldsmenn, fylgjendur einkaauðvaldsins, 30—40% þeirra samvinnu- menn og 10—15% jafnaðarmenn. Eru það einkum þeir yngri, þeir, sem gengið hafa í þjónustu kírkjunnar síð- ustu 10 árin. Fæstir láta neitt uppi um stjórnmálaskoð- anir sínar fyr en þeir hafa náð kosningu í prestsembætti, því að nú fara allar prestskosningar eftir pólitiskum lín- um og sá umsækjandi, sem grunaður er um aðra stjórn- málaskoðun, en þá sem meirihlutinn hefir í prestakallinu, þarf ekki að gera sér von um kosningu. — Það er því vorkunnarmál ungum guðfræðingum, sem finna köll- un hjá sér til að verða prestar, þó að þeir flíki ekki um of skoðunum sínum í stjórnmálum. Afstaða kirkjunnar hér á landi til jafnaðarstef'nunn- ar og hagsmunamála verkamanna er því nánast hlutlaus, hún vinnur þeim lítið gagn og lítið ógagn. Þessi afstaða kirkjunnar hefir og orðið þess valdandi, að jafnaðarmenn hér á landi hafa látið kirkjuna að mestu leyti í friði, að undanteknum einum eða tveimur frur.i- hlaupum, sem jafnaðarmenn hafa gert á hendur henni, eftir útlendri fyrirmynd, þar sem alt öðruvísi var háttað. En þau frumhlaup hafa brátt gleymzt, svo að blöð and- stæðinga jafnaðarmanna hér hafa lítið sem ekkert gevt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.