Straumar - 01.04.1930, Page 37

Straumar - 01.04.1930, Page 37
S T I! A U M A K 31 að fá hlutdeild í með því að gera huga sinn móttækilegan fyrir hann. Takmark mannsins er að verða fullkominn „eins og yðar himneski faðir er fullkominn“, fullkominn í kær- leika til allra meðbræðra sinna. Eftir kærleiksþroska einstaklingsins hér á jörðinni fara þau kjör, og það umhverfi, sem maðurinn má vænta í öðru lífi, en þar á hann að halda áfram að þroskast af þeim viðfangsefnum, sem þar bíða hans. Líf allra manna á jörðinni á að vera líf í bræðralagi og friði, án tillits til kyns, hörundslitar eða tungumáls, þar á hvorki að vera „Gyðingur né Grikki, karl eða kona“ eins og Páll postuli orðar það. Af bræðralagi mannanna í kærleika leiðir, að ytri lífskjör eiga ekki að vera ákaflega misjöfn. „Sá sem á tvo kirtla gefi þeim annan, sem engan hefir, og sá, sem mat- föng hefir geri eins“, sagði Jóhannes skírari. Flest þessi atriði eru kristnir menn sammála um. En um persónu Krists, starf hans og þýðingu fyrir mann- kynið, er lítið samkomulag, en mismunandi skoðanir manna á honum eru svo hreinguðfræðilegar, að þær koma ekki þjóðfélagsmálunum við. En jafnvíst og það er, að samkvæmt anda kristin- dómsins eiga ytri kjör mannanna í þessum heimi að vera lík, vegna kærleikans til náungans, jafnvíst er og hitt, að kristindómurinn segir ekkert um það, hvernig atvinnu- háttum þjóðanna sé bezt fyrir komið til þess að því marki verði náð, að allir geti búið við sæmileg' ytri lífskjör. Jafnaðarstefnan stefnir að sama marki um samfélag mannanna og kristindómurinn, því marki, að allir menn séu bræður, er lifi í friði, og hver hafi það, sem hann þarfnast til viðhalds lífinu og menningarlegum þörfum sínum. Kristindómurinn segir að bræðralaginu verði náð með kærleiksþroska einstaklingsins. Þegar hver einstakl- ingur hafi náö fullkomnun í kærleika verði alt líf mann- anna kærleiksríkt bræðralag. Þ\ í neitar jafnaðarstefnan ekki. En hún segir: Þó að níu menn af hverjum tíu séu

x

Straumar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.