Straumar - 01.04.1930, Page 42

Straumar - 01.04.1930, Page 42
S T U A U M A R Hfi að sjá prestana standa betlandi á kirkjutröppunum og ber þetta hörmulegan vott um það, í hvílíkt niðurlægingar ástand rússneska kirkjan er nú komin. Eftir því sem „hinni heilögu rétt-trúuðu kirkju“ tók að hnigna, sáu ýmsir beztu menn kirkjunnar, að svo bú- ið mátti ekki standa, og að kirkjan varð einhversstaðar að slaka. á, ef hún ætti ekki að veslast upp á fáum árum. En erkibiskupinn í Moskva var ósveigjanlegur að breyta í nokkru háttum og stjórnarvenju kirkjunnar. Klofnaði þá kirkjan 1922 og var stofnuð af frjálslynda hópnum hin siðbætta (reformerta) gríska kirkja Rússlands undir yflr- stjórn Platons erkibiskups í Leningrad. Er nú talið, að hún sé búin að ná undir sig fullum þriðjungi af eignum og áhangendum allrar kirkjunnar. Reyndar stendur þessi kirkja á næstum því alveg sama kenningargrundvelli og rétt-trúaða kirkjan, en er aðeins frábrugðin í því, að hún viðurkennir Sovjetstjórnina, og sér í verkum hennar guð- lega forsjón og hefir alla vega reynzt miklu samvinnu- liprari við hana. Hyggja sumir, að kirkja þessi hafl aðeins verið stofnuð og alin upp af forkólfum sameignarmanna, í því skyni, að ná á þann hátt betra tangarhaldi á eign- um og áhrifum gömlu kirkjunnar. En það er að mörgu leyti ekki líklegt, enda neitar Platon erkibiskup því harð- lega. En hvað sem því líður heflr samkomulag verið þol- anlegt til skamms tíma með þessari kirkjudeild og stjórn- inni. En nú berast þær fregnir að austan, að enn sé á ný tekið að gera harða hríð að öllum trúmálum og kirkju- starfsemi. Og það er ekki einkum gamla rétt-trúaða kirkj- an, sem fyrir ofsóknunum verður. Talið er, að hún beri dauðameinið í sjálfri sér og þvi sé henni lítil athygli veitt. Of8Óknunum er aðallega stefnt að frjálslyndum trúarhreyf- ingum meðal hinna menntaðri stétta, trúarhreyfingum, sem fullkomlega verða samrýmdar öllum hugsunarhætti nú- tímans, og að ýmsu leyti hafa viljað stefna að sörau þjóð- félagslegum umbótum og Sovjetstjórnin. Skýrir Paul Hut- chinson, fréttaritari „Christian Century“, sem nýlega hef- ir ferðazt um Rússland svo frá, að kirkjurnar hafl nú

x

Straumar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.