Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 49

Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 49
S T R A r M A !! 43 undan breðanum, hægt og hægt á þúsundum ára. Hin hóg- lífa villimannahjörð er orðin að æstum, grimmum rándýr- um, sem berjast um hvern bita og eru altaf að fara hall- oka fyrir kuldanum, fyrir dauðanum sjálfum. Svo líða ár og aldir. En einn góðan veðurdag leggur einrænn og stór- huga villimaður á breðann, leggur í norðurvegu burt frá ætthjörð sinni. Hann er ofsóttur og hafður út undan, þar sem barizt er um hvern bita, og nú vill hann ekki lengur vera með þeim. Og þegar kemur í hinn kostarýra norður- veg, þar sem óvinir og dauði le.vnast í hverju spori, þá fer hann að þróa með sér einn eiginleika dýrmætari en alt, sem hann hafði haft með sér að heiman. Það er vitið, mannvitið. Og einræninginn í norðurvegi veit að lögmál allrar tilveru er aðeins þetta: Annaðhvort verður þú að deyja eða eg. Þetta er sáttmáli hans við dýr merkurinnar, það er sáttmáli hans við alt, sem lifir. Öll tilveran er óvin- ur hans. Hann er hræddur við alt og þessvegna er hann grimmur við alt. Hann skilur li'tið og þess vegna er hann miskunnarlaus. Hann er hræddur við stjörnur himinsins og norðurljós næturinnar. Hanu urrar af grimd, þegar hann heyrir óvanalegt hljóð, sem hann skilur ekki. En hræddastur er hann við þetta, sem stundum gerist í honum sjálfum, hugsanir sínar, skapbrigði og ástríður. Það er sál hans, sem er að fálma sig fram i ljós vitundar- innar. Þá verður honum órótt, hann æðir um og ýlfrar og hrín af óró og þrá og ástríðum, sem hann skilur ekki sjálfur. Einu sinni situr hann í hnipri undir steini. Þá er eins og fari um hann rafstraumur. Ilann á nasir, sem eni ofsalega næmar fyrir öllu lifandi, og tortryggnin og veiðigrímdin blossar upp í skapinu. Hann veit af lifandi veru einhversstaðar nálægt sér. Annaðhvort þú eða eg, það er lögmál hans, sáttmáli hans við öýr merkurinnar. Og svo kemur veran í ljósmá!, hún gengur upprétt eins og hann. Það er kona, einræningi, sem líka hefir lagt á breðann til þess að þrjóskast við dauðann í norðurvegi. Þau takast á, hann læsir í hana höndunum og fellir hana. Og svo kemur það að honum, sem hann hefir aldrei gert
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Straumar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.