Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 53

Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 53
mínum veitti eg- því eftirtekt, að hjallur hjá bæ eins bóndans var gerður upp með };eim hætti, að hvolft var yfir hann hálfum áttæring, sem sagaður hafði verið sund- ur og þil sett á stafninn. Mér þótti þetta dálítið kynlegt. En hálfu kynlegra þóti mér það, að nokkrum dögum síðar varð eg þess var, að á öðrum bæ í nágrenninu var hjallur gerður upp með nákvæmlega sama hætti. Litlu síðar varð eg þess vís, að eigendur beggja hjallanna voru bræður. Þá fór eg að verða forvitinn. 0g svo er mér einu sinni sögð sagan. Þegar bræður þessir áttu að skifta arfi eftir föður sinn, sem bæði var fasteign, lausafé og bátar, þá vildu báðir hafa koseyri af arfinum. Það gekk þó ill- indalítið um jarðaskiftin og lausaféð, en áttæringinn vildu báðir eiga. Þeir deildu um þetta um hríð og harðn- aði æ deilan. Að lokum sagaði eldri bróðirinn bátinn í sundur og kvað það bezt, að hvor hefði sitt. Þessir báts- partar eru eitthvert raunalegasta tákn einstaklingshyggj- unnar, sem eg hefi séð. Þeir hafa sýnt mér það betur en nokkuð annað, hve þungt armur frummannsins hvílir á herðum vorum, hve ástríður hans sofa djúpt í sál vorri og skapferli. Þetta er harmasaga félagsmálanna á jörð- inni, sagan um harðstjórn einstaklingshyggjunnar, sem byggist á lögmálinu: Annaðhvort verður þú eða eg að deyja. Hún er öll sögð í sögu bræðranna, sem söguðu sundur bát föður síns. Og nú eru að hefjast á legg með öllum þjóðum menn, sem óska að þeim kynslóðum fari fækkandi, er láta kenna aflsmunar í öllum viðskiftum, sem saga sundur bátinn sinn, heldur en að beygja sig undir félagsleg sjónarmið. Það eru menn, sem vona á bjartari daga fyrir hið hrjáða mannkyn, menn, sem dreymir um vernd handa lítilmagn- anum, rétt handa þeim réttlausa og brauð handa hinum svanga. Og þeim er ástand félagsmálanna ekki kærara en svo, að þeir eru ráðnir í að láta það þoka, sem þoka þarf til þess að náð verði þessu marki. En ekki nóg með það, vandamál lífsins eru í þeirra augum ekki einnngis vanda- mál um mat. Þeir vona og trúa fyrst og fremst á ræktun og göfgun manneðlisins. Þeir vona að takast megi að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Straumar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.