Straumar - 01.04.1930, Side 56

Straumar - 01.04.1930, Side 56
50 S T I! A IJ M A R ingdómsins, því að Kristur þolir ekkert hik, og til þess að stappa í þá stálinu, leitast hanri við að sanna þeim yfirburði kristindómsins yfir gyðingdóminn. Ef þessi tilgáta er rétt, ætti bréfið því að vera skrif- að árið 66 e. Kr. Það sem sérstaklega er einkennilegt um guðfræði Hebr. er æðstaprests hugtakið, sem notað er um Krist og hefir þaðan komizt inn í trúfræði kirkjunnar. Jakobsbréf er í raun og veru ekki bréf, heldur ræða eða frekast safn af spakmælum og umvöndunum, ekki stílað til neins ákveðins safnaðar heldur til „hinna tólf kynkvísla í dreifingum‘!, sem sýnir að höf er Gyð- ingur, þ. e. a. s. til allra kristinna manna. Rit þetta mun ekki samansett fyr en litlu fyrir alda- mótin 100. Liggja þær ástæður fyrir þeirri skoðun, að höf. berst á móti hálfvelgju og „dauðri trú“, en trúarhit- inn var mestur fyrstu áratugina; höf. berst á móti trú án verka með svo miklum ákafa, að augsýnilegt er, að hann er að berjast gegn kenningu Páls urn réttlætingu af trúnni einni saman, og sumstaðar speglast orðalag og dæmi Páls- bréfs í Jak. Þetta sýnir, að bréfið getur ekki verið skrifað fyr en all-löngu eftir dauða Páls, er bréf hans hafa verið orðin útbreidd. Höf. bréfsins kallar sig „Jakob, þjón Guðs og drott- ins Jesú Krists“. Kaþólska kirkjan segir Jakob þenna vera Jakob Alfeusson, postula, sem hún telur sama mann og Jakob bróðir drottins (þ. e. Jesú), sem var forstöðumaður safnaðarins í Jerúsalem, þar til hann var líflátinn árið 62. Kaþólska kirkjan gerir einn mann úr þessum tveimur til þess að komast hjá að viðurkenna, að María mey hafi átt fleiri börn en Jesúm. — Mótmælendur hafa aftur á móti eignað Jakobi bróður .Tesú bréfið. En tímans vegna getur það ekki verið rétt, el' bréfið er ritað li.tlu fyrir 100, en Jakob deyr 62. Yér vitum því ekkert annað mn höf. en að hann hefir heitið Jakob, verið Gyðingur, al\ luþrung- inn siðameistari, og ógnað hvað trúin hafði lítii bætandi áhrif á siðgæðið. Bivf hans er sígild prédikun, harðorð en sönn.

x

Straumar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.