Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2001, Page 52

Frjáls verslun - 01.01.2001, Page 52
 Opið rými er í tísku hjá íslenskum fyrirtækjum á sama tíma og þeim fer fækkandi erlendis. Opið rými hefur þann ótvíræða kost að auka lárétt upplýsingaflæði innan fyrirtækis, auðvelda flutninga og endurskipulagningu og færa stjórnandann nær samstarfsmönnum sínum. Hveijum hentar að vinna í opnu rými og hverjum ekki? Þetta er grundvallarspurning sem stjórn- endur fyrirtækja hljóta að velta fyrir sér þegar ákvörðun er tekin um hvort húsnæði fyrirtækisins er skipulagt sem opið rými eða blandað og nokkr- ar lokaðar skrifstofur settar upp. Flestir eru nefnilega sammála um að misjafnt sé hvort opið rými henti starfsemi fyrirtækis, verkefnum og einstaklingunum á vinnustaðnum. Þannig segja margir að opið rými henti síður t.d. starfsmannastjórum, sem geta þurft að taka á viðkvæmum málum, en geti nýst vel í t.d. markaðsdeildum þar sem fólk vinnur mikið hópvinnu. Mjög skiptar skoðanir eru um það hvort afköst aukist, minnki eða standi í stað í opnu rými og sjálfsagt er það persónubund- ið. Sumir telja þó að afköstin minnki um allt að 40 prósent í opnu rými og það getur vitanlega komið sér illa. Opið rými hefur um langt skeið þekkst í vissum geirum at- vinnulífsins á Islandi, t.d. hjá auglýsingastofum og á ritstjórn- um, og nú er það sífellt að verða algengara, t.d hjá. tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækjum og símafyrirtækjum. Segja má að opið rými sé í tísku því flest fyrirtæki sem flytja sig um set láta skipuleggja húsnæðið að einhveiju eða öllu leyti með tilliti til opins rýmis. Þar hafa menn ekki síst sparnaðarsjónarmið í huga þó að ekki sé víst að mikið sparist því að í mörgum tilfell- um eru sett upp vönduð skilrúm, hillur og blóm til að stúka nið- ur rýmið. „Fyrirtæki leita allra leiða til að ná niður kostnaði í rekstri og telja að opið rými sé góð lausn til að nýta plássið eins og kostur er,“ segir Katrín S. Oladóttir, ráðninga- stjóri hjá PwC. Loka fyrir hlustirnar Opið rými var áberandi í fagbókum og tímaritum um innanhússarkitektúr fyrir 15 árum og varð í kjölfarið mjög vinsælt erlendis. Það hafði þó þekkst áður. Þannig seg- ir Gylfi Arnason, framkvæmdastjóri Opinna kerfa, umboðsaðila Hewlett- Packard á Islandi, að opið rými hafi tíðkast hjá Hewlett-Packard frá upp- hafi, eða frá árinu 1939 þegar fyrirtækið var stofnað. Hewlett og Packard voru þá einu starfsmenn fyrirtækisins sem var á þeim tíma starfrækt í bílskúr en þar sátu þeir í opnu rými. All- ar götur síðan hefur starfsemin verið í opnu rými og gildir það sama um alla starfsmenn. Gylfi hóf störf hjá fyrirtækinu fyrir 15 árum og hefur kynnst vel aðstæðum í Bandaríkjunum og Evrópu þar sem allir starfsmenn eru í opnu rými. Sjálfur hefur hann alltaf unnið í opnu rými og gerir enn þann dag í dag en hann deilir „skrifstofu" í opnu lými með starfandi stjórnarfor- manni fyrirtækisins, Frosta Bergssyni. „Eg hef unnið í opnu rými í 15 ár og það hefur gefið mér góða reynslu. Eg þoli vel að heyra aðra tala í síma og vinna í kringum mig. Eg heyri hvað talað er um og veit hvað er að ger- ast á vinnustaðnum. Ef maður vill getur maður lagt við hlustir en það vefst heldur ekki fyrir mér að loka fyrir hlustirnar og þá heyri ég ekki hvað talað er um,“ segir Gylfi og viðurkennir að Opið rými verður stöðugt algengara í skrifstofuhúsnœði hér á landi. Sumir segja jafnvel að opið rými sé í tísku hér á sama tíma og dregið hafi úr vinsældum þess erlendis. Skiptar skoðanir eru um kosti oggalla opinna rýma. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.