Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 54
OPIÐ RYWI fl VINNUSTÖÐUM
Algengt í sumum fögum
Opið rými er algengt hjá tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækjum, símafyrirtækjum, auglýsingastofum,
fréttastofum og á ritstjórnum og öllum nýlegum fyrirtækjum þar sem starfsfólkið er ungt og ferskt
að miklum meirihluta.
Þú elskar opið rými ef þú
- ert undir 30 ára aldri og vinnur hjá
nýstofnuðu netfyrirtæki eða vildir óska
þess að þú ynnir hjá sliku fyrirtæki.
- ert með grænt hár og klæðist rifnum
stuttermabol í vinnunni.
- ert yfirmaður sem vill vera með fólkinu
sínu.
- vilt geta séð alla á skrifstofunni án þess
að fara frá borðinu þínu.
- hefur ekki hugsað þér að rífast við
makann í símanum á skrifstofunni.
- telur að þú standir framkvæmdastjór-
anum jafnfætis því að hann er heldur
ekki með skrifstofu.
- býrð í heitu loftslagi þar sem þú getur
skroppið út fyrir til að geta verið í næði.
Þú hatar sennilega opið rými ef þú
- ert yfir 30 ára og ert búin(n) að bíða
lengi eftir þinni eigin hornskrifstofu.
- ert víðáttufælin(n).
- þarft að vera skapandi með stuttum
fyrirvara með fyrirtækið í húfi.
- átt viðkvæmar viðræður við aðra.
- hringir í háttsetta framkvæmdastjóra.
- „fílar“ samstarfsmenn þína - í fjarlægð.
Að lifa af í opnu rými
- Hlustaðu á tónlist í heyrnartólum.
- Búðu til veggi umhverfis þig úr jurtum,
bókahillum o.þ.h.
- Notfærðu þér táknmál líkamans til að
koma í veg fyrir truflun, t.d. með því að
horfa í gólfið.
- Dragðu úr líkunum á spjalli og óvæntum
heimsóknum með staðföstu svari:
„Fyrirgefðu en ég má ekki vera að því að
tala núna...“
- Hringdu og taktu á móti öllum einka-
símtölum í gemsanum svo að þú getir
staðið upp og skroppið frá þegar þú
þarft næði.
Heimild: Time
að þeir sjái út fyrir skrifstofuna og það sjáist inn til þeirra. Aðrir telja það mikinn
kost að vera sem næst samstarfsmönnum sínum og vilja helst sitja í opna rým-
inu og vera þannig í hringiðunni. Með þeim hætti á stjórnandinn auðveldar með
að verða hluti af hópnum. Hann er ekki einangraður inni á skrifstofu heldur hef-
ur hann alla möguleika á að fylgjast með því sem gerist í fyrirtækinu og grípa
inn í ef þörf krefur. Starfsmannaviðtöl fara þá fram í lokuðum fundarherbergjum
og einnig er þar tekið á viðkvæmum málum. Flestir eru sammála um að staða
stjórnandans sé jafn sterk ef ekki sterkari í opnu rými en því lokaða.
Hvaða mynd er stjórnandinn að gefa af sér með þvi að sitja í opnu rými?
Það er Katrín S. Oladóttir sem verður fyrir svörum: „Stjórnandi, sem velur að
sitja í opnu rými, gefur til kynna að hann vilji vera sýnilegur og virkur stjórn-
andi og að starfsfólkið eigi greiða leið að honum. Þetta er mjög algengt í nýrri
fyrirtækjum, þar sem sviðsstjóri leiðir hóp manna við vinnu, en hentar alls ekki
öllum stjórnendum sem eigi að síður ná góðum árangri í stjórnun. Oft er talað
um að með þessu móti séu stjórnendur í meiri nálægð við starfsfólk sitt og
þekki því betur hæfileika þess og veikleika og geti gripið fyrr inn í ef eitthvað
fer úrskeiðis."
Hljóðmengun er streituvaldur
Gallarnir við opið rými geta
verið ijölmargir. Fyrir utan
þá umdeildu skýringu að
afköstin minnki má nefna
þörf starfsmanna til að
vinna í næði og einrúmi
og geta þannig einbeitt
sér betur en í opnu rými.
Tímaritið Time segir nýlega
að opið rými hafi áhrif á ein-
beitinguna og vitnar þar í nið-
urstöður rannsóknar sem sýna
að tveir þriðju hlutar starfs-
fólks í opnu rými verði
fyrir truflun frá sam-
Guðbjörg Linda Rajhsdóttir, félagsfræðingur hjá Vinnueftirliti ríkisins, segir að alltof
sjaldan sé tekið tillit til verkefna og þarfa viðkomandi starfsmanns þegar oþið rými sé
til umrœðu. Hún hvetur stjórnendur til þess að láta fara fram þarfagreiningu áður en
ákvörðun er tekin.
54