Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 8
1 móttöku Planet City. Bryndís Ifaldimarsdnttir og Elín Alfreðsdnttir
afgreiða viðskiptavin.
Planet City er boðið upp á nudd og sér Guðmunda Pórisdóttir nuddari
um að koma vöðvum viðskiptavina í lag.
Heilsuræktarstöðin Planet City er tekin til starfa að Austurstræti 8 í Reykjavík:
Heilsurækt á
heimsmælikvarða
Heilsuræktin í Planet City er miðuð við þarfir þeirra sem vinna
við mikið álag og þurfa góða þjónustu og skjótan árangur. Þjón-
ustan er persónuleg og allir hafa sinn einkaþjálfara. í Planet
City er unnið með líkamann og heilsuna í ró og næði.
Gullstöðvar Planet Pulse, heilsuræktarfyrirtækis Jónínu Benediktsdóttur, eru
tvær, Planet Esja og Planet City. Sú fyrri hefur verið starfandí á Hótel Esju í nokk-
ur ár en sú síðari, Planet City, er um þessar mundir að taka til starfa í nýju húsi
við Austurstræti 8 í Reykjavík. Stöðin er þar á götuhæðinni með rúmgóða bún-
ingsklefa, laugar, böð og aðrar vistarverur auk þess sem tækjasalurinn er stór
og bjartur. Þar er allt gert til þess að viðskiptavinum líði sem best og því er
nudd- og snyrtiaðstaða í hæsta gæðaflokki, Mikil virðing er borin fyrir einkalífi
viðskiptavina. Hvítar gardínur fyrir gluggum loka fyrir forvitnum augum og opna
jafnframt fyrir birtuna.
Planet City er þrefalt stærri en heilsuræktarstöðin Planet Esja og hefur hún
þá sérstöðu að geta tekið á móti hópum, allt að 40 manns í einu. Fyrirtæki geta
því látið bóka hópa á sínum snærum og boðið t.d. starfsmönnum sínum eða er-
lendum gestum í dekur og heilsurækt í miðborginni. Á eftir er kjörið að fá sér
hressingu á Atlantic. Á heilsuræktarstöðvarnar Esju og City er aldurstakmark
18 ára.
Einkaþjálfarí tekur á móti viðskiptavininum þegar hann kemur í heilsuræktina í fyrsta skipti og fylgir honum svo eftir í hvert skipti og hjálpar honum
þannig að ná markmiðum sínum. Hér má sjá viðskiptavin á hlaupabrautinni. Þjálfari fylgist með.
8
liimMHIIWii'lililllH