Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 30
Einbýlishúsið við Mávanes 10, nýlega gert upp og er allt hið vandaðasta. Tilboða var óskað í auglýsingu en tekið fram að ekki þýddi að bjóða
undir 50 milljónir króna. Fáheyrt er að einbýlishús fari á svo háu verði á Islandi. Mynd: Geir Olafsson
Verðmúrinn rofinn
Fasteignaverð hefur verið í hámarki
að undanförnu og vakti athygli ný-
lega þegar einbýlishús að Mávanesi
10 á Arnarnesi í Garðabæ var auglýst til
sölu, óskað var eftir tilboðum en jafn-
framt var tekið fram að ekki yrði tekið á
móti tilboðum undir 50 milljónum
króna. Um svipað leyti var annað einbýl-
ishús auglýst til sölu fyrir um 40 milljón-
ir króna. I samtölum Fijálsrar verslunar
við nokkra fasteignasala kemur fram að
myndast hefur markaður lýrir dýrar fast-
eignir og ijársterka kaupendur að undanförnu. Ekki eru margir
kaupendur að svo dýrum húseignum og þegar komið er upp í
ákveðið hámark fara kaupendur að velta týrir sér hvað þeir geti
byggt fýrir sömu upphæð. Kaupendur að svo dýru húsnæði eru
þvi einna helst sendiráð og svo hugsanlega eíhaðir Islendingar
sem eru að flytjast aftur til landsins. En markaðurinn er vissulega
fyrir hendi!
Raunlækkun í ársbyrjun „Hæsta verð sem ég hef heyrt um er 80
milljónir og ég held að það sé hægt að finna hús á 40 milljónir ef
við förum aftur í tímann þvi að það hafa selst dýr hús hérna án
þess að þau hafi endilega farið á sölu. Oft eru þessi hús ekki sýnd.
En jú, jú, auðvitað er að vissu leyti verið að ijúfa þarna ákveðinn
múr og auðvitað er það sögulegt. Fasteignaverð var í sögulegu há-
marki í desember, síðan varð örlítil raunlækkun í janúar og aftur í
febrúar, að vísu aðeins um 1-2%, þannig að þetta er auðvitað brejd-
ing,“ segir Guðrún Arnadóttir, formaður Félags fasteignasala.
Ekki offramboð ennþá Gangverð á
stórum og myndarlegum einbýlishús-
um er í dag á bilinu 25-33 milljónir
króna og gangverð á raðhúsum er 17-
25 milljónir. Verðið fer eftír stærð, stað-
setningu, innréttingum og ástandi. Ef
mikið er lagt í húsin, lýsingu, garð, inn-
réttingar o.s.frv. fer húsið á hærra
verði. Hvað raðhúsin varðar þá er með-
alraðhús á 21-23 milljónir króna en lítið
raðhús á einni hæð er í lægri verðkant-
inum. Gert er ráð fýrir að meðalverð á
fokheldu húsi nemi 90-110 þúsundum króna á hvern fermetra,
t.d.í Grafarholtinu þar sem lóðir hafa verið mjög eftírsóttar, og
að fullbúinn kostí fermetrinn allt að 200 þúsund krónur. Við-
skiptin á fasteignamarkaðnum hafa verið afar lífleg undanfarin
misseri en Guðrún býst við að ákveðinn stöðugleiki verði á
þessu ári og að fasteignaverðið nái jafnvægi.
„Markaðurinn er rólegri en hann var þegar eftirspurnin var
hvað mest en ætli það megi ekki segja að hann sé í leit að jafn-
vægi. Það er ekki offramboð á eignum ennþá en menn eiga
frekar von á að jafnvægi náist einhvern tímann á þessu ári,“
segir hún.
Spár um efnahagslægð hafa áhrif á fasteignamarkaðinn og
sama gildir um háa vexti. „Það er erfiðara að fá lánaiýrir-
greiðslu í bönkum nú en undanfarin misseri," segir Guðrún.
„Sala í atvinnuhúsnæði er minni nú en sl. 2-3 ár. Við finnum
einnig fýrir því að almenningur er farinn að bogna undan vaxta-
okrinu." S3
Verðmúr var rofmn þegar auglýst
var nýlega eftir tilboðum yfir 50
milljónum króna í einbýlishús í
Mávanesi í Garðabæ. Gangverð á
myndarlegum einbýlishúsum er á
bilinu 25-33 milljónir króna.
Efiir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Gangverð á stórum og myndarlegum einbýlishúsum er í dag á bilinu 25-33
milljónir króna og gangverð á raðhúsum er 17-25 milljónir.
30